|
|
Foreldrarölt í KópavogiÍ dag er foreldrarölt í Kópavogi mjög virkt í flestum skólasamfélögum Kópavogs. Um er að ræða öflugt samstarf foreldra, lögreglu, forvarnarfulltrúa og ÍTK. Á heimasíðu SAMKÓP (www.samkop.is) er hægt að nálgast bækling um röltið. Samráðsfundir eru haldnir 3 sinnum á vetri – í september til að stilla saman strengi fyrir komandi vetur, í janúar til að taka stöðuna á því hvernig hefur gengið og líta fram á veginn og að lokum í apríl þegar röltvaktir í tengslum við lok samræmdra prófa eru skipulagðar. Markmiðið með röltinu er margþætt m.a. forvarnarstarf, efla kynni foreldra, gefa þeim tækifæri til að kynnast hverfinu sínu frá öðru sjónarhorni og síðast en ekki síst nágrannavarsla. Með því að vera á ferli á þeim svæðum þar sem börnin halda sig mest, sýnum við þeim að okkur er ekki sama. Þetta brýtur frekar upp það mynstur sem annars yrði ef enginn fullorðinn væri á ferli. Nærvera foreldra er líklegri til að fæla frá landasala og aðra ólöglega starfsemi sem ætlað er að freista unglinganna. Hjá foreldrum sem ekki þekkja til foreldraröltsins vaknar oft spurningin „af hverju á ég að rölta….. barnið mitt er alltaf heima á kvöldin?“ Svarið við þeirri spurningu endurspeglast í því sem sagt var hér að framan varðandi margþætt markmið foreldraröltsins og fyrir foreldra 6 ára barna eru það forréttindi að fá að taka þátt í að byggja markvisst upp traustan grunn að öflugu og góðu foreldrasamstarfi til næstu 10 ára. Hafið einnig í huga að börnin okkar verða unglingar fyrr en okkur grunar. Látum þau alast upp við það að okkur er ekki sama um hvar þau eru eða hvað þau aðhafast. Í vetur hleypum við smá keppni í mönnun foreldraröltsins. Öðru hvoru í vetur munum við færa ykkur fréttir af þátttöku einstakra bekkja og í vor munum við heiðra öflugasta foreldrahópinn þ.e. þann hóp þar sem þátttaka í foreldraröltinu er best. Vertu því tilbúin þegar kemur að röltvakt í þínum bekk og hafðu í huga að röltið er hressandi göngutúr í góðum félagsskap – kjörin leið til að hefja góða helgi. Skoðið mjög vel: ÁBENDINGAR TIL UMSJÓNARMANNA FORELDRARÖLTA
Við vökum yfir þér - Foreldrarölt í Kópavogi
Foreldrarölt - Forsagabrot úr samantekt Fjólu Þorvaldsdóttur, fyrrverandi formanns foreldraráðs Digranesskóla og stjórnarmanni í SAMKÓP Haustið 1994 ákváðu foreldrar í Hjallaskóla að nú væri nóg komið, en þá höfðu unglingar um nokkurra ára skeið safnast saman við verslunarmiðstöðina í Engihjalla. Af þeim hlaust talsvert ónæði vegna óreglu þeirra og skemmdarverka. Fyrir tilstuðlan Ingibjargar Ingimundardóttur, formanns foreldrafélagsins, var Ársæll Gunnarsson fenginn til aðstoðar við skipulagningu á foreldrarölti. Góð reynsla hafði þá fengist af foreldrarölti í Árbæjarhverfi og Efra-Breiðholti. Þennan fyrsta vetur var það frekar fámennur hópur foreldra sem tók að sér að rölta um hverfið. Það gekk á ýmsu í fyrstu, foreldrar voru óvissir um hlutverk sitt. Unglingarnir voru forvitnir, en samt jákvæðir í garð foreldranna. Veturinn eftir bættust síðan foreldrar í Digranesskóla við hóp foreldranna og foreldrar í Snælandsskóla og Þinghólsskóla hófu að rölta um sín skólahverfi. Aðrir skólar hafa síðan bæst í hópinn. Í fyrstu voru samskipti foreldra við lögreglu í gegnum talstöð sem lögreglan lagði til, en síðar sennilega veturinn 1994-95 gekkst Áfengisvarnarráð, með aðstoð Búnaðarbanka Íslands og VÍS, í að kaupa farsíma fyrir foreldraröltin. |