OgVodafone

Toyota

 

Vinahópar er:

Hópastarf sem stuðlar að betri samskiptum innan bekkja og eykur félagsfærni nemenda. Í hverjum hóp eru 4-5 nemendur. Undir stjórn foreldra hittist hópurinn nokkrum sinnum og gerir eitthvað saman. Að kynnast bekkjarfélögum sínum á öðrum vettvangi en bara í skóla er skemmtilegt. Umburðarlyndi eykst og sjóndeildarhringurinn víkkar. Foreldrar kynnast bekkjarsystkinum barna sinna og þekkja þau öll með nafni. Löngu eftir að hópastarfi er hætt halda foreldrar barnanna áfram að fylgjast með bekkjarfélögunum. Við tökum þau tali þegar við hittum, spyrjum hvernig gangi. Fyrirhafnarlaust veitum við þeim aðhald og sendum þau skilaboð að okkur er ekki sama. Úr erindi Birnu Sigþórsdóttur sem hún flutti á Foreldraþingi 2000


Tilgangur vinahópa ekki endilega að búa til ný vinasambönd, heldur ein leið til að leyfa börnum í bekk að kynnast betur, efla samstöðu og góðan bekkjaranda. Börnunum gefst kostur á að kynnast hvert öðru við aðrar aðstæður en í skólanum og að kynnast börnum sem þau annars hefðu lítið sem ekkert kynnst.

Markmið með vinahópum

Börnin

  • hafi leikið saman við aðrar aðstæður en í skólanum
  • hafa leikið við bekkjarfélaga sem þau annars hefðu lítið sem ekkert kynnst
  • skilja betur aðstæður félaganna og umburðarlyndi þeirra eykst
  • upplifi meiri samkennd í bekknum

Foreldrar

  • kynnist bekkjarfélögum barna sinna og þekkja þau öll með nafni
  • leiki sér með börnunum
  • kynnist foreldrum bekkjarfélaga barna sinna

Framkvæmd og umsjón.

  • Framkvæmd vinahópastarfs er alfarið í höndum foreldra og umsjón með framkvæmdinni er í höndum bekkjarfulltrúa.
  • Í upphafi er bekknum skipt upp í nokkra vinahópa (4 - 5 nemendur í hóp), sem hittist reglulega aðra hvora viku.
  • Hver vinahópur ákveður tíma til samvista sem hentar öllum í hópnum og má gera ráð fyrir að hver samverustund vari ca 2 klst.
  • Foreldri (foreldrar) gestgjafa eru þátttakendur í samverustundinni, leiða samskiptin á jákvæðar brautir og grípa inn í ef með þarf.
  • Munið að vinahópastarfið má aldrei snúast upp í samkeppni um stórfenglegasta viðfangsefnið og/eða veitingarnar – höfum það ætíð í huga!
  • Gott er að safna saman upplýsingum um það hvernig hópar voru skipaðir og hvað hafi verið gert.
  • Mikilvægt að foreldrar hittist reglulega og ræði málin (hvernig gengur ? - er vilji til að halda áfram ? - eru allir virkir? - hvað þarf að gera til að allir verði virkir? - hvað hefur gengið vel, hvað illa ?)

Æskilegt og óæskilegt í vinaheimsóknum?

Þetta er ekki neinn tæmandi listi heldur bara til leiðbeiningar:

Það er æskilegt að:

  • krakkarnir leiki sér öll saman – fái e.t.v. hjálp við að velja leiki
  • sem flestir foreldrar komi að sækja börnin sín og spjalla
  • foreldrar sem halda vinahóp spjalli við börnin í heimsókninni og gefi sér góðan tíma með börnunum. Hópurinn má aldrei vera án umsjónar foreldris.
  • fara í útileiki
  • að sýna börnum í vinaheimsókn heimilið og kynna heimilisfólkið
  • era jákvæð gangvart vinahópastarfinu og fullviss að það sé til góðs

Það er óæskilegt að:

  • að bjóða upp á nammi – nema á nammidegi
  • að spenna bogann hátt í veitingum
  • börnin leiki sér í tölvuleikjum
  • börnin horfi á vídeo eða sjónvarp

Aftur til baka í Hugmyndabanki

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 24-Sep-2006 @ 10:59 GMT.