OgVodafone

Toyota

 

Starfsreglur fulltrúaráđs Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra

Fulltrúaráđ Heimilis og skóla er samstarfs- og samráđsvettvangur foreldraráđa og foreldrafélaga í landinu. Fulltrúar svćđaráđa, sem samanstanda af stjórnum foreldrafélaga og foreldraráđa, ásamt trúnađarmönnum á ţeim stöđum ţar sem slík samtök starfa ekki, mynda fulltrúaráđiđ. Fulltrúaráđiđ starfar í nánum tengslum viđ stjórn og starfsmenn landssamtakanna. Stjórn landssamtakanna er málsvari foreldra í landinu og međ tilkomu fulltrúaráđs er mynduđ breiđfylking foreldra í landinu sem vinnur ađ eflingu foreldrasamstarfs og gćtir hagsmuna foreldra og barna á landsvísu.

1. gr.

Markmiđ fulltrúaráđsins er ađ tengja landssamtökin betur svćđaráđum foreldra um allt land í ţví augnamiđi ađ raddir foreldra heyrist betur og samtakamáttur ţeirra eflist. Ţeim svćđaráđum sem eiga ađild ađ samtökunum gefst kostur á ađ tilnefna einn til tvo fulltrúa, (eftir legu og íbúafjölda) frá viđkomandi svćđi í fulltrúaráđiđ til ţriggja ára í senn en stćrstu sveitarfélögin skulu eiga einn fulltrúa hvert, ţ.e. Reykjavík, Kópavogur, Garđabćr, Hafnarfjörđur, Seltjarnarnes, Mosfellsbćr, Reykjanesbćr, Árborg og Akureyri.

2. gr.

Stjórn landssamtakanna kallar saman fulltrúaráđiđ til sérstaks landsfundar einu sinni á ári eđa oftar ef ţurfa ţykir. Leitast verđi viđ ađ halda fundi utan höfuđborgarsvćđis ţriđja hvert ár. Fulltrúaráđiđ er bakland stjórnar ţar sem skipulögđ og gagnkvćm upplýsingamiđlun fer fram.

3. gr.

Svćđaráđ foreldra leitast viđ ađ efla foreldrasamstarf á sínu svćđi. Međ ţátttöku í fulltrúaráđi Heimilis og skóla skuldbinda viđkomandi svćđaráđ sig til ađ skipa trúnađarmann/fulltrúa í ráđiđ sem sér um ađ miđla upplýsingum frá starfsmönnum Heimilis og skóla til foreldra á sínu landssvćđi og tekur ţátt í fundum fulltrúaráđsins. Fulltrúar eru ábyrgir fyrir ţví ađ koma upplýsingum um stjórnarskipan í foreldraráđum og foreldrafélögum á sínu svćđi til Heimilis og skóla á hverju hausti. Einnig standa ţeir ásamt sínum svćđaráđum reglulega fyrir námskeiđum fyrir foreldraráđ, foreldrafélög og bekkjarfulltrúa međ stuđningi landssamtakanna ef óskađ er.

4. gr.

Tengsl fulltrúaráđs viđ stjórn Heimils og skóla eru m.a. á sameiginlegum fundum en verkefnastjóri er sérstakur tengiliđur milli stjórnar og fulltrúaráđsins. Heimili og skóli veitir fulltrúum handleiđslu, ráđgjöf og upplýsingar m.a. međ rafrćnu fréttabréfi. Á heimasíđu samtakanna verđur upplýsingaveita fyrir fulltrúaráđiđ. Einnig eru landssamtökin svćđaráđum innan handar varđandi námskeiđahald og starfsemi svćđaráđanna.

5. gr.

Fulltrúaráđinu er heimilt ađ tilnefna einn fulltrúa og annan til vara í ellefu manna stjórn landssamtakanna. Fulltrúi er valinn á fundi fulltrúaráđs sem haldinn skal fyrir ađalfund á hverju ári.

Samţykkt af stjórn Heimilis og skóla 29. apríl 2006

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 26-May-2006 @ 10:41 GMT.