Fundargerð stjórnar SAMKÓP.
Fundur haldinn þriðjudaginn 9. janúar 2007 kl. 18:20 í Kópavogsskóla.
Mætt voru: Hrefna Gunnarsdóttir (HG), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ), Pétur Valdimarsson (PV) Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Erlendur Geirdal (EG).
Einnig varamenn: Helga P. Finnsdóttir (HPF) og Jóhanna Baldursdóttir (JB).
Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:
- Við vökum yfir þér (RÁ) - Rannveig sýndi tillögu sína að útliti borðanna og rætt var um liti og áletranir. Hún er búin að fá vilyrði Árna Þórs framkvæmdastjóra fræðslusviðs fyrir framtakinu. SAMKÓP mun kosta gerð borðanna en bæjarstarfsmenn munu sjá um uppsetningu þeirra á ljósastaura í bænum. Átakið verður kynnt á samráðsfundi foreldrafélaga og foreldraráða þann 16. jan. n.k. og síðar með bréfi til formanna foreldrafélaga og skólastjóra.
- Stoðir í skólastarfi – bæklingur (HG) - Ákveðið að bíða með frekari vinnu við bæklinginn vegna endurskoðunar grunnskólalaga sem verið er að vinna að, þar sem gera er ráð fyrir talsverðri breytingu varðandi foreldrasamstarf i grunnskólum.
- Gátlisti um brunamál fyrir foreldraráð (PV) - Pétur mun senda drög að gátlista á stjórnina sem síðan verður unnið áfram með á næsta stjórnarfundi.
- Af vettvangi skólanefndar (RÁ) - Umræður voru um boðaða endurskoðun skólastefnu bæjarins. Í blaði Framsóknarmanna (sjá frétt á www.samkop.is) má lesa að fundur um efnið væri ákveðinn þann 24. febrúar en nokkra furðu vekur að Rannveig, fulltrúi SAMKÓP í skólanefnd, hefur hins vegar ekkert fundarboð fengið ennþá um fundinn. Á næsta fundi skólanefndar á Rannveig von á að fá afhenta skýrslu sem saman hefur verið tekin um Dægradvöl, sem stendur til boða börnum við grunnskóla bæjarins.
- Fulltrúaráðsfundur í janúar - (fulltrúaráðsfundur 16. jan. og foreldraröltsfundur 22. jan.) - Rætt var skipulag fulltrúaráðsfundar sem SAMKÓP heldur þann 16. jan. og boðar til fulltrúa foreldrafélaga og foreldraráða. Á fulltrúaráðsfundum leitast stjórn SAMKÓP við að upplýsa fulltrúana um það sem hæst ber í stjórnun skólamála bæjarins hverju sinni og helstu verkefni á vegum SAMKÓP. Einnig eru skoðanaskipti og samræður fulltrúa á fundunum mjög mikilvæg þáttur í mótun og samræmingu stefnu SAMKÓP og foreldrafélaganna/-ráðanna.
- Endurskinsmerki (TMÞ) - Búið er að finna upp skemmtilegt útlit sbr. merki Umferðarstofu og Glitnis. Tryggvi ætlar því að finna út hvort og þá hvar foreldrafélög geti orðið sér úti um þessi merki til dreifinga í skólunum, en þeim hefur verið dreift í takmörkuðu magni til nemenda á unglingastigi.
- Heimasíða SAMKÓP (TMÞ) - Tryggvi er að vinna að því að hægt verði að vista skjöl á síðu SAMKÓP og verður með nánari fréttir af því á næsta fundi.
- Bekkjarmöppur - hugmyndir um bloggsíður o.fl. - Rædd var hugmynd um að SAMKÓP beiti sér fyrir því að bekkjarmöppur/foreldrahandbók verði einnig aðgengilegar á vefsíðum skólanna. Hugmyndin gengur út á að annars vegar verði almennur texti og aðrar upplýsingar úr möppunum beintengdar við regluleg uppfærð móðurskjöl á vef SAMKÓP. Hins vegar getir hver bekkur sett efni inn á eins konar bloggsíður inni í sinni möppu. Innan hvers bekkjar þyrfti að móta reglur um hvaða efni yrði sett á opnar síður og mætti nota tilefnið til að kenna börnum góðar ,,netvenjur” með tilliti til www.saft.is. Líklegt er að með þessu fyrirkomulagi á bekkjarmöppum muni sá hugmyndabanki sem þær eru nýtast betur auk þess sem upplýsingaflæði á bloggsíðunum verði til þess að styrkja starfið í bekkjunum. Ákveðið var að þróa hugmyndina frekar og stefna að því að hrinda henni í framkvæmd.
Næsti stjórnarfundur verður fimmtudaginn 15. febrúar 2007.
Fundi slitið kl 19:40 - EG
Til baka í fundargerðayfirlit