OgVodafone

Toyota

 

Fundargerđ frá fundi stjórnar SAMKÓP

međ fulltrúum foreldraráđa og verkefnisstjóra Heimils og skóla.

Fundur haldinn mánudaginn 9. janúar 2006 kl. 20:00 í Hjallaskóla.


Mćtt voru f.h. SAMKÓP: Hrefna Gunnarsdóttir, Jóhanna M. Baldursdóttir, Jón Svavarsson (einnig formađur FR Smáraskóla), Jóna Guđný Eyjólfsdóttir, Pétur Valdimarsson (einnig formađur FR Lindaskóla) og Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ). Tryggvi M. Ţórđarson var fjarverandi.

Helga Margrét Guđmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimils og skóla flutti erindi á fundinum og stjórnađi hópavinnu og umrćđum.

Alls mćttu 16 fulltrúar foreldraráđa, ţ.e. öll foreldraráđ grunnskóla í Kópavogi áttu sér a.m.k. einn fulltrúa á fundinum – sjá fskj. međ fundargerđ.


Eftirfarandi var til umrćđu á fundinum:

1. Hlutverk og starf Foreldraráđa (FR) – Helga Margrét Guđmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimils og skóla fór yfir sögu FR, verkefni FR, samvinnu FR innan bćjarfélaga og sameiginlegan fulltrúa FR í skólanefndum bćjarfélaga. Hún sagđi frá nýrri handbók sem Heimili og skóli gaf út s.l. haust, minntist á gátlista og upplýsingar í gömlum bćkling um FR. HMG fór vítt og breitt yfir ađkomu FR ađ ýmsum málum og hvatti FR til ađ nýta sér bekkjarfulltrúana til ađ komast í tengsl viđ grasrót foreldra Hún nefndi ýmis dćmi m.a. í tengslum viđ stofnun FFGÍR og störf annarra svćđaráđa. HMG dreifđi ýmsu efni, m.a. úr nýrri handbók Maraskóla, “hvađ finnst okkur um skólann?”, “einkunnabók foreldra” og “starfsreglum fyrir bekkjarfulltrúa”.

2. Kópavogsskólasamningurinn – Jón Ólafur Halldórsson, formađur FR Kópavogsskóla, sagđi frá öflugu starfi ráđsins sem hefur leitt til margra nýjunga í skólastarfi í Kópavogi m.a. fjárhagslegs sjálfstćđis skólanna. Hann fjallađi um "Siđferđileg reikningsskil" (gildisgrunnur) og ađdraganda ađ svo kölluđum "Kópavogsskólasamningi". Ađ lokum opnađi hann fyrir spurningar og var áhugi fundarmanna svo mikill ađ ljóst er ađ frumkvöđlastarf foreldraráđs Kópavogsskóla er efni í annan fund FR.

3. Hópavinna og umrćđur – Foreldraráđsfulltrúum var ađ lokum skipt upp í 4 vinnuhópa sem svöruđu sameiginlega 5 spurningum sem lagđar voru fyrir hópana. Ađ loknum var fariđ yfir svör hópanna og ţau stuttlega rćdd. Spurningarnar voru:.

  • Međ hvađa hćtti getur SAMKÓP tengst betur (ađstođađ) foreldraráđ í Kópavogi? Međ reglulegum sameiginlegum fundum FR t.d. 2 sinnum á ári. Međ auknu upplýsingastreymi, t.d. fréttabréfi til FR (t.d. fréttir af ţví hvađ önnur FR eru ađ gera vel). Veita ráđgjöf, t.d. benda á leiđir sem eru fćrar til ađ eiga samskipti viđ bćjaryfirvöld. Skapa umrćđuvettvang FR. Halda frćđslufundi. Miđla upplýsingum frá skólanefndarfundum.

  • Hvađa málum gćti fulltrúi foreldra komiđ á framfćri í skólanefnd Kópavog? Öll mál – s.s. ađbúnađur barna í skólunum, hollustuhćttir, ástand umhverfis, kennslutengt efni, samţćtting skóla og tómstundastarfs (íţróttir, listir, skátar o.s.frv.) einstaklingsmiđađ nám, öryggismál, umferđarnefnd, skólaskrárbúnađur,

  • Vita foreldraráđ ađ ţau geta sent erindi til skólanefndar gegnum fulltrúa foreldra? Nei, a.m.k. ekki allir. Sumir vilja frekar senda erindi beint til skólanefndar – en mikilvćgt er ađ hafa í huga ađ oft vegur ţungt ađ erindi séu borin upp af stórum samstćđum hópi og einnig mikilvćgt ađ fulltrúi foreldra í skólanefnd fái tímanlega afrit af erindum einstakra FR til ađ geta kynnt sér ţau og fylgt ţeim betur eftir á skólanefndarfundum.

  • Hvernig geta foreldraráđ og foreldrafélög unniđ saman? Međ miđlun upplýsinga og sameiginlegum fundum (t.d. 2 sinnum á ári) ţar sem fariđ er yfir hlutverk/markmiđ og verkefni FF og FR og sérstaklega skođađ ţau mál/verkefni sem skarast.. Einnig dćmi um ađ fulltrúi FF sitji í FR.

  • Vita foreldrar í Kópavogi fyrir hvađ SAMKÓP stendur? Algengara en ekki ađ hóparnir töldu ađ almennir foreldrar viti ekki fyrir hvađ SAMKÓP stendur.

Á fundinum var samantektum úr svörum FR viđ spurningalistum, sem SAMKÓP lagđi fyrir ráđin í desember, dreift. Jafnframt var fulltrúum FR bent á ađ koma á framfćri ábendingum ef eitthvađ vantađi í samantektina og einnig ef ţau hafa einhverjar ađrar ábendingar eđa fyrirspurnir til stjórnar SAMKÓP.

Í lok fundarins gerđi RÁ grein fyrir vinnu í tengslum viđ verkefni Lýđheilsustöđvar "Allt hefur áhrif - einkum viđ sjálf" og vćntanlegum spurningarlistum sem m.a. verđa lagđi fljótlega fyrir FR í Kópavogi.

Fundi var slitiđ um kl. 22:18 en áfram héldu umrćđur í smćrri hópum og ţví ljóst ađ mikil ţörf er á ţví ađ ţessi hópur fái tćkifćri til ađ hittast fljótlega aftur.

Til baka í fundargerđayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 01-May-2006 @ 01:46 GMT.