|
|
Fundargerð stjórnar SAMKÓP.Fundur haldinn miðvikudaginn 8. nóvember 2007 kl. 18:00 í Hörðuvallaskóla. Mætt voru: Björn Arnarson (BA), Erlendur Geirdal (EG), Hrefna Gunnarsdóttir (HG) og Pétur Valdimarsson (PV). Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:
Í fundargerðinni segir:
-„ Skólanefnd felur fræðsluskrifstofu að leggja fram hugmyndir á næsta fundi um möguleika á að bæta kjör og starfsumhverfi starfsfólks Dægradvala að höfðu samráði við forstöðukonur Dægradvala.
- Lagt fram erindi, dags. 14. október 2007, frá kennara við grunnskóla Kópavogs, vegna launamála.”
Fulltrúa foreldra (RÁ) er falið að spyrjast fyrir um stöðuna í skólum bæjarins, þ.e. hvort tekist hafi að manna öll störf, hvert sé hlutfall leiðbeinenda miðað við kennara með réttindi auk upplýsinga um væntanlegt brotthvarf kennara t.d. vegna barneignaleyfa. SAMKÓP telur mjög mikilvægt að fundin verði leið til að gera kennslustörf við grunnskóla Kópavogs eftirsóknarverð.
Í sömu fundargerð segir:
- „Lagt fram yfirlit frá fræðsluskrifstofu yfir kostnað foreldra og skólanna vegna vettvangsferða skólaárið 2006-2007. Skólanefnd leggur áherslu á að slíkar ferðir haldi áfram sem þáttur í fjölbreytilegu skólastarfi. Skólanefnd ítrekar að skólarnir skilgreini vettvangsferðir betur með hliðjón af kennslu. Málinu vísað til áframhaldandi úrvinnslu á fræðsluskrifstofu.“
Stjórn SAMKÓP telur mjög mikilvægt að fundin verði leið til að þessar ferðir þurfi ekki að leggjast af.
Umræður um verkefnið og erindi sem HG barst frá ÓB ráðgjöf þar sem meðal annars er sagt frá niðurstöðum könnunar tveggja hjúkrunarfræðinema á verkefninu. Telja nemarnir að verkefnið sé góð viðbót við þá kynfræðslu sem fram fer í grunnskólum landsins.
Ákveðið að senda kynningu á foreldrafélögin og taka málið síðan til umræðu á fulltrúaráðsfundi SAMKÓP í janúar 2008.
Fundur verður í næstu viku í samstarfshópnum.
BA hefur kannað jarðveginn og mun hafa samband við aðila á næstunni.
Mikið berst af ruslpósti á samkop@samkop.is og nauðsynlegt að kanna hvort þjónustuaðili getur sett upp síu. Stofna þarf hópa sem SAMKÓP sendir reglulega á. Ákveða þarf hvort hægt sé að áframsenda skeyti til formanns eða hvort einhver (t.d. ritari) taki að sér að fylgjast með pósthólfinu reglulega.
Ritara falið að athuga þessi mál.
Fréttir frá RÁ í skólanefnd varðandi erindi um röltið á norrænni ráðstefnu í okt.
Umræðum frestað.
Næsti fundur verður 4. des´07 kl. 18:00 í Smáraskóla. Fundi slitið um kl. 19:15. - EG Til baka í fundargerðayfirlit |