Fundargerđ stjórnar SAMKÓP.
Fundur haldinn fimmtudaginn 26. apríl 2007 kl. 20:00 í Snćlandsskóla.
Mćtt voru: Hrefna Gunnarsdóttir (HG), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ), Tryggvi M. Ţórđarson (TMŢ) og Erlendur Geirdal (EG).
Eftirfarandi var til umrćđu á fundinum:
- Ađalfundur SAMKÓP - undirbúningur - Fundarbođ verđur sent formönnum FF og FR bréflega, en rafrćnt til annarra fulltrúa FF og FR. Auglýsingar verđa settar á heimasíđu SAMKÓP og sendar foreldrafélögunum sem láta senda međ Mentor á foreldra. Hrefna ćtlar ađ útvega fundarstjóra og Pétur mun hafa samband viđ skođunarmenn (Karl og Fjólu). Á fundinum verđur afhent árskýrsla SAMKÓP og skýrsla fulltrúa foreldra í skólanefnd. Í fundarbođi verđa foreldrar hvattir til ađ gefa kost á sér í stjórn SAMKÓP.
- Fréttir af vettvangi fulltrúaráđs Heimilis og skóla - Sagt frá fulltrúaráđsţingi Heimilis og skóla sem var haldiđ í Hofsstađaskóla dagana 23. og 24. mars. Ţar flutti m.a. Páll Ólafsson félagsráđgjafi frábćrt erindi. Sjá nánar umfjöllun á heimasíđu SAMKÓP.
- Fréttir af vettvangi samstarfshóps um foreldrarölt - Samstarfshópurinn fundađi 23. apríl og var ţá m.a. rćtt um skipulagningu rölts eftir lok samrćmdu prófanna auk annarra málefna sem varđa unglingana okkar. Í framhaldi af fundinum verđa drög ađ bréfi til foreldra send á öll FF, auk ţess var skipađur 4 manna vinnuhópur sem mun taka til nánari skođunar málefni sem rćtt var á fundinum. Menningarnótt verđur núna í öllum félagsmiđstöđvunum; náttfataball og vaka um nóttina.
- Önnur mál
- Ákveđiđ var ađ stefna ađ ţví ađ fá Pál Ólafsson til ađ halda fyrirlestur á nćsta kynningarfundi fyrir bekkjarfulltrúa.
- Einnig var rćdd sú hugmynd ađ međ haustinu fari SAMKÓP ađ bjóđa upp á stćrri frćđslufundi sem opnir vćru öllum foreldrum barna í grunnskólum Kópavogs.
- Ţekkt er ađ mćting foreldra á frćđslufundi sem foreldrafélögin halda er oft drćm en međ ţví ađ SAMKÓP héldi opna fundi gćfist foreldrum fjölbreyttara val og ţeir áhugasömustu gćtu sótt fleiri fundi.
Fundi slitiđ kl 21:15 - EG
Til baka í fundargerđayfirlit