OgVodafone

Toyota

 

Fulltrúaráðsfundur 16.01.2007

Dagskrárliður nr. 1: Af vettvangi SAMKÓP

Fundur með fulltrúum foreldraráða haldinn 7. september 2006 sjá fundargerð
Farið var yfir drög að gátlista varðandi verkefni ráðanna. Endurbættum gátlista var dreift til fulltrúa foreldaráða eftir fundinn. Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að foreldraráðin eigi sér samstarfsvettvang þar sem hægt er að ræða hin ýmsu málefni ráðanna og var ákveðið að stefna að öðrum fundi í janúar sem yrði umræðufundur þar sem fulltrúum gæfist kostur á að ræða það sem efst er á baugi í þeirra vinnu og leita ráðlegginga hjá fulltrúum annarra skóla. Fundurinn í kvöld er sá fundur – nema hvað stjórn SAMKÓP ákvað að boða einnig fulltrúa foreldrafélaga til að efla tengingu milli foreldrafélaga og foreldraráða, enda mynda fulltrúar FF og FR fulltrúaráð SAMKÓP. Síðar í kvöld, undir dagskrárliðnum “af vettvangi foreldraráða og foreldrafélaga” munum við kynnast nánar því sem ber hæðst á vettvangi foreldrasamstarfs í skólunum – t.d. nýjungum í foreldrasamstarfinu, helstu verkefnum og “baráttumálum” foreldraráða, samstarfi foreldrafélag og foreldrar og öðrum málum.

Fundur með bekkjarfulltrúum 26. september 2006 sjá fundargerð
Á fundinum ræddi Helga Margrét, verkefnisstjóri Heimilis og skóla vítt og breitt um foreldrasamstarfið, hlutverk bekkjarfulltrúa og hin ýmsu verkefni og aðstæður sem geta komið upp við samstarf foreldra. Helga Margrét talaði um mikilvægi þess að góð tengsl væru milli bekkjarfulltrúa og fulltrúa foreldraráða – enda væru bekkjarfulltrúar reykskynjarar fyrir foreldraráðin. Rætt var um öldugang í foreldrasamstarfinu þar sem skiptust á hæðir og lægðir og því væri mikilvægt að búa til hefðir og formfesta starfið svo það standi ekki og falli með einstaka foreldrum. Í lok fundarins var fundarmönnum skipt upp í hópa sem fengu það verkefni að velta fyrir sér hvað væri hægt að gera til að efla samstarf forelda og fá fólk til að taka þátt og auka samtakamátt foreldra. Ýmsar góðar hugmyndir komu fram í hópavinnunni og eru nokkrar þeirra taldar upp í fundargerð á heimasíðu SAMKÓP – meðal annars voru hugmyndir um að:

  • nýta mannauð í foreldrahópnum t.d. í tengslum við fyrirlestra og/eða starf í félagsmiðstöðvum (t.d. foreldrar með mótorhjóladellu og/eða veiðidellu)
  • nýta sambönd við foreldra t.d. í tengslum við starfskynningar eldri bekkinga (námsráðgjafar eyða oft miklum tíma í að leita til fyrirtækja – hægt að leysa með því að ég tek þitt barn og þú mitt)
  • námshópar fyrir samræmd próf - foreldra og nemendur leggist yfir skólabækurnar og læri saman - í lokin er haldin \"Gettu betur\"-keppni úr námsefninu (t.d. samfélagsfræðinámsefni)
  • vinahópar miðstig - jafnvel útfært á þann hátt að hópurinn býr til og æfir leikrit með aðstoð og jafnvel þátttöku foreldra

Á fundinum kom fram ánægja bekkjarfulltrúa yfir að fá tækifæri til að hitta bekkjarfulltrúa frá öðrum skólum. Margt mælir með því að fræðsla fyrir bekkjarfulltrúa fari fram á sameiginlegum vettvangi og er það von mín að SAMKÓP endurtaki námskeið sem þetta næsta haust.

Samstarfshópur um foreldrarölt
Í upphafi skólaársins fundaði samstarfshópur um foreldrarölt – en sá hópur fundar 3 sinnum á vetri - í upphafi skólaárs, í janúar og í apríl vegna undirbúnings fyrir röltvaktir í kringum lok samræmdra prófa. Næsti fundur samstarfshópsins verður næst komandi mánudagskvöld á lögreglustöðinni og verður fundarboð sent út síðar í vikunni. Samstarfshópurinn er skipaður lögreglumanni í forvörnum, forvarnafulltrúa Kópavogs, forstöðumanni ÍTK og fulltrúum félagsmiðstöðvanna, fulltrúum SAMKÓP og fulltrúum frá öllum grunnskólum Kópavogs. Í lok fundarins var bæklingnum “Við vökum yfir þér” (tengja í bækling) dreift til foreldrafélaga – en í honum er almenn kynning á hlutverki og skipulagi foreldrarölts auk þess sem þar er að finna ýmis símanúmer og vefslóðir. Foreldrafélögin annars dreifingu bæklingsins til foreldra en hann er líka að finna á heimasíðu SAMKÓP og hvetjum við skóla til að setja tengil inn á bæklinginn. Næstu skref varðandi verkefnið ”Við vökum yfir þér” er uppsetning borða víðs vegar um Kópavog til að minna á röltið og mikilvægi þess. Um er að ræða borða sem festir verða á ljósastaura með þar til gerðum festingum – ekki ósvipaðir borðunum sem minna á ”skólabörn”. Það er stefna SAMKÓP að kynna foreldraröltsverkefnið og mikilvægi þess fyrir öllum Kópavogsbúum. Jafnframt viljum við fæla í burtu óæskilega sölumenn af götum Kópavogs.

Samningur við Kópavogsbæ og Heimili og skóla meira
Í október leitaði SAMKÓP eftir fjárstuðningi frá Kópavogsbæ til að tryggja starfsgrundvöll samtakanna. Bóninn var vel tekið og í lok nóvember var undirritaður samningur milli samtakanna og Kópavogsbæjar til þriggja ára, um að bærinn styrki samtökin árlega um 500 þús. kr.

Í samningnum kemur fram að til að stuðla að góðu samstarfi foreldra í Kópavogi við grunnskóla bæjarins skal SAMKÓP meðal annars:

  • skipa fulltrúa til að sitja fundi skólanefndar Kópavogs sem áheyrnarfulltrúi, sem hefur tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar og miðla upplýsingum á milli skólanefndar og foreldra
  • vera aðili að samstarfi um foreldrarölt
  • veita leiðsögn um hvernig foreldrafélög og foreldraráð geta stutt einstaka skóla með jákvæðum hætti. Félagið mun í því skyni m.a. halda námskeið fyrir foreldrafélög og foreldraráð um samstarf og stuðning við skóla.

Við sama tilefni var undirritaður samningur milli SAMKÓP og Heimils og skóla, landssamtaka foreldra, um að SAMKÓP greiði fyrir félagsaðild allra foreldrafélaga við grunnskóla Kópavogs að Heimili og skóla. Árgjaldið er 10.000 kr. fyrir hvert foreldrafélag. Með þessu vill SAMKÓP sýna stuðning við frábært starf sem unnið er á vegum Heimils og skóla og tryggja aðildarfélögum sínum bakland í sínu starfi. Forvarnaverkefnið „Hugsað um barn“ (tengja við ÓB ráðgjöf) Í október stóð SAMKÓP fyrir kynningarfundi varðandi forvarnaverkefnið ”Hugsað um barn” – en verkefnið þekka margir sem ”dúkkuverkefnið”. Í framhaldi af fundinum sendi SAMKÓP annað bréf til bæjarráðs þar sem hvatt var til þess að nyti sérstaks stuðnings til að auðvelda grunnskólum bæjarins að taka það upp sem tilraunaverkefni til næstu 3ja ára.

Hlutverk og verkefni foreldraráða og foreldrafélaga
Stjórn SAMKÓP hefur velt fyrir sér hugmyndum um útgáfu bæklings til kynningar á hlutverki foreldraráða annars vegar og foreldrafélga hins vegar. Fregnir herma hins vegar að vinnuhópur sem vinnur að endurskoðun á grunnskólalögunum komi til með að leggja fram tillögur sem breyta talsvert landslagi foreldrasamstarfsins og því höfum við ákveðið að bíða þar endurskoðun laga hefur verið afgreidd.

Handbók foreldrasamstarfs
Það sama má segja um handbók Maraskóla, sem þið hafið öll fengið á rafrænu formi frá Heimili og skóla. Búið var að útbúa nýja útgáfu fyrir ”Maraskóla í Kópavogi” og búið að fá vilyrði fyrir fjölföldun hjá Kópavogsbæ – en í ljósi þess hversu margir eru nú þegar farnir af stað í þeirri vinnu að heimafæra slíka handbók að foreldrasamstarfi viðkomandi skóla var ákveðið að sleppa slíkri fjölföldun. Um leið og heimasíða SAMKÓP býður upp á þann möguleika að vista skjöl á síðunni munum við vista ”Handbók SAMKÓPskóla í Kópavogi” á síðunni auk þess sem við munum fá afrit af útgáfu sem verið er að undirbúa í Snælandsskóla.

Bekkjarmöppur á netinu
Þessar vikurnar er stjórn SAMKÓP að skoða nýja hugmynd og það er að koma upp möppu á heimasíðu samtakanna sem væri ígildi upplýsingainnleggs í bekkjarhandbók, sem hægt væri að tengja við bloggsíður bekkja. Innan hvers bekkjar þyrfti að móta reglur um hvaða efni yrði sett á opnar síður og mætti nota tilefnið til að kenna börnum góðar ,,netvenjur” meðal annars með tilliti til SAFT – reglna. Líklegt er að með þessu fyrirkomulagi á bekkjarmöppum muni sá hugmyndabanki sem þær eru nýtast betur auk þess sem upplýsingaflæði á bloggsíðunum verði til þess að styrkja starfið í bekkjunum. Enn á eftir að þróa og útfæra þessa hugmynd og eru allar ábendingar frá ykkur mjög kærkomnar.

Breytingar á grunnskólalögum og ný aðalnámskrá meira
Ég hef nú farið yfir það helsta í starfsemi SAMKÓP fyrri hluta skólaársins. Um síðustu áramót tóku gildi breytingar á grunnskólalögunum auk þess sem ný aðalnámskrá grunnskóla tók gildi. Unnið er að heildarendurskoðun grunnskólalaganna og mun starfshópur skila af sér tillögum á næstu viku. Á okkar heimavelli, Kópavogi, er hafin undirbúningur að endurskoðun skólastefnu og verður leitað til fulltrúa foreldra við þá vinnu.

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 25-Jan-2007 @ 07:05 GMT.