|
|
Fundargerð stjórnar SAMKÓP.Fundur haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2006 kl. 20:00 í Snælandsskóla. Mætt voru: Jóhanna M. Baldursdóttir (JB), Pétur Valdimarsson (PV) Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (JE), Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ) og Hrefna Gunnarsdóttir (HG) sem ritar fundargerð þessa. Jón Svavarsson (JS) var fjarverandi. Eftirfarandi var til umræðu á fundinum: 1. Heimasíða SAMKÓP – TMÞ lagði fram og kynnti mjög góða greinargerð varðandi tölvumál SAMKÓP og foreldrafélaga. Fundarmenn voru sammála að mjög mikilvægt væri að hraða undirbúningsvinnu við endurnýja heimasíðu samtakanna til að efla upplýsingamiðlun til foreldra í Kópavogi. TMÞ mun halda þeirri undirbúningsvinnu áfram en aðrir stjórnarmenn voru hvattir til að skoða heimasíðuna www.rallyreykjavik.net til að sjá heimasíðu í vefumsjónarkerfinu pmwiki. Rætt var um persónuupplýsingar á heimasíðu SAMKÓP og ákveðið að í framtíðinni skuli aðeins birta upplýsingar um nafn, netfang (t.d. í stað samkop@visir.is standi “samkop hjá visi.is”) og farsímanúmer. 2. Foreldraráð(FR) – Rætt um sameiginleg málefni FR og drög að erindisbréfi fulltrúa foreldra í skólanefnd, m.a. með hliðsjón af stefnu SAMKÓP. Samþykkt að RÁ verði varamaður PV í skólanefnd og verður tilkynning þar um send skólanefnd. PV og RÁ munu leggja fram drög að erindisbréfi fyrir næsta fund SAMKÓP og samantekt á hugmyndum varðandi sameiginleg verkefni/vettvang FR. 3. “Við vökum yfir þér” – RÁ lagði fram ný drög að röltbækling og sagði frá stöðu mála varðandi endurnýjun síma. Nánari frétta er að vænta frá henni með tölvupósti á næstu dögum. 4. Frumvarp til breytinga á lögum um grunnskóla – Helstu athugasemdir sem ræddar voru snúa að því að tryggja að allir nemendur og forráðamenn þeirra fái vitneskju um möguleika á mati vegna valgreina (sjá 17. gr.) sem og annan sveigjanleika t.d. heimildir varðandi töku samræmdra prófa í 8. og 9. bekk. Einnig var rætt um mikilvægi þess að reglugerð verði gefin út varðandi verkefni og starf foreldraráða. HG falið að skrifa drög að umsagnarbréfi sem afgreitt verður með tölvupósti af stjórn SAMKÓP. 5. Önnur mál
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:40. Næsti stjórnarfundur SAMKÓP verður fimmtudaginn 2. mars 2006. Til baka í fundargerðayfirlit |