OgVodafone

Toyota

 

Ársskýrsla SAMKÓP starfsárið 2005-2006.

Á aðalfundi SAMKÓP, sem haldinn var 29. nóvember 2005, voru samþykktar lagabreytingar sem höfðu meðal annars í för með sér að aðalfundur SAMKÓP er nú haldinn í maí. Síðast liðið starfsár hefur því verið í styttra lagi – aðeins rúmir 5 mánuðir.

Eftirtaldir hafa setið í stjórn SAMKÓP starfsárið 2005 – 2006:

  • Hrefna Gunnarsdóttir, formaður (Hjallaskóla)
  • Jón Svavarsson, ritari (Smáraskóla)
  • Pétur Valdimarsson, gjaldkeri og fulltrúi foreldra í skólanefnd (Lindaskóli)
  • Jóhanna M. Baldursdóttir, meðstjórnandi (Hjallaskóla)
  • Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, meðstjórnandi (Hjallaskóla)
  • Rannveig H. Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi (Snælandsskóla)
  • Tryggvi H. Þórðarson, meðstjórnandi (Kópavogsskóla)

Fundir:

Stjórnarfundir
Haldnir voru átta stjórnarfundir frá aðalfundi 29. nóvember 2005 til 10. maí 2006. Allar fundargerðir má finna á nýuppfærðri heimasíðu samtakanna.

Fundir SAMKÓP með fulltrúum foreldraráða og foreldrafélaga.
Í byrjun janúar boðaði SAMKÓP fulltrúa foreldraráða til fræðslufundar þar sem Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimilis og skóli, og Jón Ólafur Halldórsson, formaður foreldraráðs Kópavogsskóla, fluttu fróðleg erindi. Í mars var haldinn samráðsfundur foreldrafélaga og í framhaldi af þeim fundi var boðað til fræðslufundar varðandi fundarsköp og fundarstjórnun.

Fundir Skólanefndar Kópavogs
Fulltrúi foreldra í skólanefnd sat fundi nefndarinnar á starfsárinu með áheyrnar- og tillögurétt. Nefndin fundaði 6 sinnum á þessu starfsári SAMKÓP, þ.e. frá 29. nóvember 2005.

Samráðsfundir foreldrarölta
SAMKÓP tók þátt í 3 samráðsfundum foreldrarölts á þessum vetri. Sá fyrsti var haldinn í september 2005, annar fundurinn 23. janúar og sá þriðji 24. apríl 2006. Að venju voru fundirnir vel sóttir af fulltrúum foreldrafélaganna og umsjónarmönnum foreldraröltanna. Umsjón fundanna er í höndum Hörpu Þórðardóttur, forvarnafulltrúa Kópsvogs, en að skipulagningu, undirbúning og framkvæmd koma SAMKÓP, Anna Elísabet Ólafsdóttir, lögreglumaður í forvörnum og fulltrúar ÍTK. Fundir með einstökum skólum Fulltrúar SAMKÓP þáðu gott boð og heimsóttu foreldra í Salaskóla í mars, á fund sem haldinn var í samvinnu við Helgu Margréti, verkefnisstjóra Heimils og skóla. Á fundinum fengum við m.a. tækifæri til að kynna starf SAMKÓP.

Fulltrúaráð Heimilis og skóla
Á fundi í október 2005 var fulltrúaráð Heimilis og skóla stofnað og hélt ráðið annan fund sinn 29. apríl 2006. Á fundum fulltrúaráðsins gefst fulltrúum gott tækifæri til að bera saman bækur sínar, flutt eru fróðleg erindi auk þess sem fulltrúaráðið nýtur þess að vera undir verndarvæng Helgu Margrétar, verkefnisstjóra Heimilis og skóla, sem miðlar upplýsingum til og milli fulltrúanna. Jafnframt gafst fulltrúa SAMKÓP tækifæri til að fara í heimsókn til Reykjanesbæjar til að kynnast skólamálum og foreldrasamstarfi þar í bæ, en eitt af svæðaráðunum, FFGÍR, starfar í Reykjanesbæ (www.ffgir.is).

Helstu verkefni vetrarins:

  • Innra starf – Stjórn samtakanna setti sér starfsreglur í lok janúar. Á aðalfundi SAMKÓP 10. maí 2006 verða lagðar fram tillögur að enn frekari breytingum á lögum samtakanna. Með þessum breytingum er m.a. leitast við að tryggja starfsgrundvöll samtakanna með öflugri þátttöku foreldrafélaga og foreldraráða við alla grunnskóla Kópavogs. Jafnframt er leitast við að tryggja endurnýjun í samstarfinu sem telja má að tryggi foreldrasamstarfinu stærri og öflugari hóp virkra foreldar.
  • Könnun varðandi störf foreldraráða – Í desember voru spurningalistar sendir til foreldraráða og voru svör þeirra dregin saman í samantekt sem kynnt var á fundi 9. janúar 2006.
  • Könnun varðandi verkefni og störf foreldrafélaga. – Í febrúar sendi SAMKÓP foreldrafélögum spurningalista þar sem m.a. var spurt út í verkefni þeirra, fjáröflun, samskipti við aðra aðila í foreldrasamstarfinu, SAMKÓP o.fl. Niðurstöðum var dreift í mars í tengslum við samráðsfund foreldrafélaga sem haldinn var 13. mars 2006.
  • “Við vökum yfir þér” – Í vetur hefur staðið yfir undirbúningur varðandi endurnýjun símtækja fyrir röltvaktir og afnotasamninga síma sem tryggir að ekki lokist fyrir notkun þeirra. Jafnframt hefur vinnuhópur starfað við hönnun á nýjum bækling til kynningar á foreldraröltinu og verður honum dreift til foreldra í vor og haust. Í tilefni af endurnýjun símtækja og útgáfu bæklings og veggspjalda verður hið gamalgróna foreldrarölt í Kópavogi kynnt undir nýju slagorði – þ.e. “Við vökum yfir þér”.
  • Heimasíða – Unnið hefur verið að uppfærslu á heimasíðu samtakanna í einföldu og aðgengilegu vefumsjónarkerfi. Með tilkomu nýrrar heimasíðu verður aðgengi foreldra greiðara að fundargerðum SAMKÓP og öðru efni samtakanna.
  • Slagorð í Kópavogspóstinum – Ráðgert er að hefja birtingu slagorða í Kópavogspóstinum. Tilgangurinn er að koma góðum áminningum til foreldra í Kópavogi en jafnframt að kynna SAMKÓP og heimasíðu samtakanna fyrir foreldrum.
  • Fundarsköp og fundarstjórnun – Haldinn var fræðslufundur 13. mars þar sem Gísli Blöndal, ráðgjafi, hélt erindi varðandi fundarsköp og fundarstjórnun. Í framhaldi af fundinum var ákveðið að færa foreldrasamstarfi hvers skóla og bókagjafir auk þess sem hægt verður að fá tengt efni lánað hjá SAMKÓP.
  • Erindisbréf fyrir fulltrúa foreldra í skólanefnd – Í lögum samtakanna er kveðið að um að erindisbréf fyrir fulltrúa foreldra í skólanefnd skuli samþykkja á aðalfundi . Tillaga að erindisbréfi verður lögð fyrir aðalfund 10. maí 2006.
  • Skjalavistun SAMKÓP – Við leit að eldri gögnum SAMKÓP var m.a. leitað til Héraðsskjalasafns Kópavogs en þar var ekkert að finna er varðar sögu SAMKÓP. Í framhaldi af leitinni var ákveðið að í framtíðinni verði skjöl SAMKÓP vistuð hjá Héraðsskjalasafni Kópavogs. Stefnt er að því að ganga frá samningi við safnið í sumar eða haust.
  • Umsögn varðandi frumvarp til breytingar á lögum um grunnskóla - þingskjal 671, mál nr. 447 (sjá www.althingi.is/vefur/nefndarumsagnir.html).

Viðburðir framundan

  • Forvarnaráðstefna ÍTK í samstarfi við SAMKÓP – 15. maí 2006 – SAMKÓP hefur leitað eftir stuðningi foreldrafélaga til að tryggja góða kynningu á ráðstefnunni fyrir foreldra í Kópavogi. Hér eru á ferðinni góðir fyrirlestrar sem eiga erindi til allra sem láta sig varða velferð barna og unglinga.
  • Frambjóðendafundur um skólamál – opinn fundur þriðjudaginn 16. maí 2006 í Félagsheimili Kópavogs. KMSK, Kennarafélag Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kópavogs, stendur fyrir fundi með fulltrúum framboða - sjá nánar www. kmsk.is.
  • Fulltrúaráðsfundur 29. maí 2006 – fundur SAMKÓP með fulltrúum allra foreldrafélaga og foreldraráða við grunnskóla í Kópavogi. Okkar kæra Helga Margrét, verkefnisstjóri Heimils og skóla, verður með erindi á þessum fundi þar sem sérstaklega verður fjallað um samstarf foreldraráða og foreldrafélaga auk þess sem nýjum fulltrúum gefst tækifæri til að kynnast betur verkefnum foreldrasamstarfsins.

Verkefni framundan

Á þessu starfsári hefur mikil áhersla verið lögð á innra starf SAMKÓP í þeim tilgangi að koma starfsemi samtakanna í þann farveg að þau séu sem hæfust til að styðja við bakið á foreldraráðum og foreldrafélögum í Kópavogi, ekki síst nýjum ráðum og félögum í nýjum skólum bæjarins.
Næstu skref eru meðal annars:

  • Efling samstarfs fulltrúa foreldraráða og foreldrafélaga, þ.e. fulltrúaráðs SAMKÓP, með reglulegum fundum þar sem fulltrúar koma að mótun dagskrár.
  • SAMKÓP til framtíðar, þ.e. tryggt verði að samtökin njóti stuðnings foreldrafélaga og foreldraráða til framtíðar varðandi mönnun stjórnar og vinnuhópa. Jafnframt er mikilvæg að rekstrargrundvöllur samtakanna verði tryggður og í því sambandi verður sérstaklega leitað eftir stuðningi frá Kópavogsbæ.
  • Frekari kynning á SAMKÓP þannig að tryggt sé að sem flestir foreldrar í Kópavogi þekki til samtakanna og viti hvert þeir geta snúið sér varðandi upplýsingaöflun og stuðning.
  • Saga SAMKÓP, þ.e. haldið verði áfram að leita uppi sögubrot SAMKÓP og tryggt verði að göng samtakanna verði vistuð á tryggan hátt á Héraðsskjalasafni Kópavogs.

Lokaorð

SAMKÓP þakkar fulltrúum foreldraráða og foreldrafélaga fyrir gott samstarf á liðnu starfsári. Jafnframt færum við öðrum samstarfsaðilum, t.d. samstarfshópi um foreldrarölt, ÍTK, Heimili og skóla, skólanefnd og öðrum samstarfs– og styrktaraðilum okkar bestu þakkir fyrir gott samstarf á liðnu starfsári.

Samstarfsfólki mínu í SAMKÓP þakka ég fyrir öflugt og ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári. Sérstakar þakkir fá þeir aðilar sem í gegnum árin hafa lagt sitt að mörkum til að móta og efla starf SAMKÓP.

Hrefna Gunnarsdóttir
formaður SAMKÓP starfsárið 2005-2006

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 04-Jun-2006 @ 01:37 GMT.