|
|
Fundargerð aðlafundar SAMKÓPFundur haldinn mánudaginn 10. maí 2006 kl. 19:20 í Hjallaskóla. Mætt voru úr stjórn SAMKÓP: Hrefna Gunnarsdóttir (HG), Pétur Valdimarsson (PV), Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Jóhanna M. Baldursdóttir (JB), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ) og Jón Svavarsson (JS) – Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (JGE) hafði boðað forföll. Auk 9 fulltrúa foreldrafélaga og foreldraráða. Dagskrá: 1. Fundur settur Fundur settur kl 19:20. Formaður SAMKÓP leggur til að Guðrún Atladóttir verði fundarstjóri og Jón Svavarsson fundaritari, sem er samþykkt samhljóða. Hrefna Gunnarsdóttir, formaður SAMKÓP, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir þau verkefni sem samtökin hafa tekið sér fyrir hendur á liðnum vetri og færði jafnframt samstarfsaðilum þakkir fyrir gott samstarf á tímabilinu og framlag þeirra fyrir málefni grunnskólana í Kópavogi. Sjá fylgiskjal 1 Pétur Valdimarsson gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum samtakanna og fór yfir skil á árgjöldum meðal annars, auk þess sem hann greindi frá stöðu fjárhags samtakanna. Hrefna kynnti framkomnar breytingar á lögum samtakanna, sem fram höfðu verið lagðar með réttmætum hætti, og voru þær samþykktar samhljóða. Gengið var til stjórnarkjörs og var Hrefna Gunnarsdóttir ein í kjöri til formanns og var kjörin til eins árs. Tryggvi Magnús Þórðarson og Pétur Valdimarsson hlutu kosningu til eins árs, en Rannveig Ásgeirsdóttir og Erlendur Geirdal voru kjörin til næstu tveggja ára, stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi. Jóhanna Baldursdóttir og Helga P. Finnsdóttir voru kjörnar sem varamenn. Hlutu þau öll kosningu með samhljóða lófaklappi. Skoðunarmenn reikninga voru kjörin þau Karl Ottó Schiöth til tveggja ára og Fjóla Hreinsdóttir til eins árs. Lögð var fram tillaga um árgjald, þ.e. sama gjald og áður eða krónur tuttugu á nemenda í hverjum grunnskóla sem standa að samtökunum, og var sú tillaga samþykkt. Kynnt var erindisbréf fyrir fulltrúa samtakanna til setu á skólanefndarfundum, voru engar athugasemdir gerðar og það samþykkt samhljóða. Hrefna gerði grein fyrir dagsskrá samtakanna sem framundan væri og hvatti fólk til að gefa henni gaum og skoða heimasíðu Samkóp til að fylgjast með því sem framundan væri. Pétur Valdimarsson gerði grein fyrir skýrslu um úttekt á brunavörnum í grunnskólum Kópavogs, sem í ljós leiðir að ýmsu er ábótavant í þeim málum og er þessi skýrsla ekki í takt við það sem lög gera ráð fyrir. Í framhaldi af þessari greinagerð tjáði Jón Svavarsson frá bréfi sem hann ritaði skólanefnd í maí 1996, þar sem hann fór þess á leit að fá upplýsingar um hvernig málum um eldvarnir væri háttað í grunnskólum Kópavogs, hvernig æfingum um rýmingar áætlanir væri framkvæmdar og hvort þær væru framkvæmdar yfirleitt, eins hvort starfsmenn skólana væru þjálfuð reglulega í meðferð slökkvitækja og að auki hvort þau sömu fengju reglulega námskeið og þjálfun í skyndihjálp. Greint var frá nýútkomnum bækling eða handbók fyrir foreldrarölt, tilgang hans og innihaldi og útgáfu á veggspjaldi til kynningar á öflugu foreldrarölti í Kópavogi sem jafnframt er grenndarvarsla um leið, og hve mikilvægur þáttur það væri að rölta sem forvarnastarf í baráttu gegn ólöglegri sölu á vímuefnum til unglinga, sem dæmi að nefna. Eins var gerð grein fyrir gjöf OgVodafone á símum og símkortum til samtakanna til nota á röltinu en fyrir áttu samtökin síma sem margir hverjir eru að ganga úr sér. Einnig var Toyota umboðinu P. Samúelsson þakkaður stuðningur til útgáfu á þessum bækling og veggspjald. Greint var frá opnun á nýrri uppfærslu af heimasíðu samtakanna og fundarmenn hvattir til að skoða hana og koma með ábendingar og athugasemdir varðandi efni hennar. Rætt var um mikilvægi foreldrafélaga við framhaldsskóla og öflugrar löggæslu. Fundi slitið kl 21:22. Fylgiskjal 1
Skýrsla stjórnar á aðalfundi “Á aðalfundi SAMKÓP, sem haldinn var 29. nóvember 2005, voru samþykktar lagabreytingar sem höfðu meðal annars í för með sér að aðalfundur SAMKÓP er nú haldinn í maí. Síðast liðið starfsár hefur því verið í styttra lagi – aðeins rúmir 5 mánuðir. Eftirtaldir hafa setið í stjórn SAMKÓP starfsárið 2005 – 2006:
Í ársskýrslu SAMKÓP, sem dreift hefur verið til fundargesta er gerð grein fyrir helstu fundum og verkefnum SAMKÓP á starfsárinu. Næstu skref snúa meðal annars að:
SAMKÓP þakkar fulltrúum foreldraráða og foreldrafélaga fyrir gott samstarf á liðnu starfsári. Jafnframt færum við öðrum samstarfsaðilum, t.d. samstarfshópi um foreldrarölt, ÍTK, Heimili og skóla, skólanefnd og öðrum samstarfs– og styrktaraðilum okkar bestu þakkir fyrir gott samstarf á liðnu starfsári. Samstarfsfólki mínu í SAMKÓP þakka ég fyrir öflugt og ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári. Sérstakar þakkir fá þeir aðilar sem í gegnum árin sem í gegnum árin hafa lagt sitt að mörkum til að móta og efla starf SAMKÓP”. |