|
|
"Tölum saman"Í byrjun fyrirlesturs eru foreldrar og unglingar hafðir saman þar sem rætt er um kynhegðun unglinga, gefnar tölulegar upplýsingar og rætt um hlutverk foreldra í kynfræðslu unglinga. Að því loknu er foreldrum og unglingum skipt í tvo hópa. Hjá foreldrum er fjallað um hvaða leiðir hægt er að fara til að nálgast unglinga um þetta brýna málefni og hvað sé mikilvægt að ræða um. Meðal unglinga er rætt um beina og óbeina kynfræðslu í nútíma samfélagi og mikilvægi foreldra í þessu sambandi. Þessi efni eru síðan rædd í minni hópum sem endar með sameiginlegum pallborðsumræðum. Með þessu móti gefst foreldrum og unglingum tækifæri til að skyggnast inn í reynsluheim hvors annars sem væntanlega auðveldar þeim að tala saman um þetta viðkvæma málefni. Í kjölfar fræðslufunda komust höfundar efnisins að því að brýn þörf er fyrir fræðsluefni um þetta málefni og réðust því í gerð bæklinganna tveggja. Bæklingarnir eru ókeypis og munu höfundar vera með þá á fræðslufundum sínum en jafnframt er hægt að panta bæklingana og fá um þá frekari upplýsingar hjá Lýðheilsustöð. Aftur til baka í Forvarnir |