|
|
Verkefnið "Hugsað um barn" gengur þannig fyrir sig að hjúkrunarfræðingur mætir í tiltekinn skóla á fimmtudegi og er með hvern bekk í þeim árgangi sem ætlað er að hafa námskeiðið fyrir, í tvo tíma þann dag. Á föstudagsmorgni kemur sendiferðabílstjóri með ,,börnin” ásamt fylgihlutum í viðkomandi skóla. Hjúkrunarfræðingurinn mun þá einnig vera með tvær kennslustundir þann daginn og munu ,,börnin” þá vera í kennslustofunni í augsýn nemenda. Í þessum tímum fjallar hjúkrunarfræðingurinn um ýmis málefni í sambandi kynfræðslu og barneignir. Einnig er sýnt kennslumyndband og farið yfir hvernig umönnun ,,barnanna” gengur fyrir sig. Á heimasíðu ÓB ráðgjafar hf eru nánari upplýsingar varðandi verkefnið. þar kemur m.a. fram að Reykjanesbær hefur gert samning við fyrirtækið og verður boðið upp á verkefnið í öllum skólum Reykjanesbæjar. Í bréfi til bæjarráðs, dagsettu 27. október 2006, hvatti SAMKÓP Kópavogsbæ til þess að styðja við verkefnið ”Hugsað um barn” og auðvelda grunnskólum bæjarins að taka það upp sem tilraunaverkefni til næstu 3ja ára. Jafnframt var hvatt til þess að verkefninu yrði fylgt eftir með rannsókn á því hverju þetta breytir í hegðun/viðhorfum barna og unglinga í Kópavogi, svo hægt verði að meta verkefnið út frá niðurstöðum rannsóknarinnar. meira Aftur til baka í Forvarnir |