OgVodafone

Toyota

 

Fréttir

27. nóv. 2009 Endurskinsvesti fyrir rölthópa

ÍTK færði SAMKÓP góðar gjafir í vikunni þ.e. endurskinsvesti fyrir foreldraröltshópa skólanna. Með vestunum verða rölthóparnir sýnilegri og bæði lögreglan og ÍTK geta auðveldlega þekkt foreldraröltshópana á eftirlitsferðum sínum um hverfin.

26. nóv. 2009 Virkir foreldrar í Digranesskóla

Fjölmargir áhugasamir foreldrar sóttu bekkjarfulltrúanámskeið í Digranesskóla á dögunum þar sem okkar góðkunna Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Heimilis og skóla, fór yfir ný grunnskólalög, skólaráð og hlutverk bekkjarfulltrúa í samstarfi heimila og skóla. Hún kynnti einnig nýútkomna bæklinga Heimilis og skóla undir heitinu „Virkir foreldrar betri grunnskóli". Á heimasíðu Digranesskóla kemur fram að mikill hugur var í foreldrum og voru þeir einstaklega virkir og áhugasamir. Líf og fjör var í hópeflinu og allir höfðu eitthvað til málanna að leggja í hópastarfinu.

20. október 2009 Fulltrúaráðsfundur Heimilis og skóla"

Fulltrúaráðsfundur Heimilis og skóla verður haldinn á Seltjarnanesi föstudaginn 30. október kl. 9 - 13:30. Fulltrúaráði stendur jafnframt til boða að taka þátt í foreldrafundi á fimmtudagskvöldinu þar sem m.a. verður hægt að hlýða á erindi Charles Desforges aðalfyrirlesara á þingi menntavísindasviðs. meira

20. október 2009 "Foreldrar eru auðlind í skólastarfi"

Á heimasíðu Heimilis og skóla má finna samantekt og glærur frá ráðstefnunni "Foreldrar eru auðlind í skólastarfi" sem haldin var í Stokkhólmi. Þar kemur m.a. fram að áhrif íhlutunar foreldra eru m.a. aukin þekking, gildismat og skilningur. meira

19. október 2009 Vika 43 - Kannabis, afleiðingar og umfang

Efnt hefur verið til morgunverðarfundar í samstarfi við Náum áttum hópinn og ber fundurinn yfirskriftina: Kannabis umfang og afleiðingar. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að mæta á fundinn sem haldinn verður þriðjudaginn 20. október kl. 08.15 – 10 á Grand Hóteli. meira

10. október 2009 Noktun orkudrykkja bönnuð

Af gefnu tilefni hefur verið ákveðið að banna notkun orkudrykkja í félagsmiðstöðvum ÍTK og á öllum viðburðum á vegum ÍTK. meira

2. október 2009 Forvarnaáætlun og forvarnafulltrúi Kópavogs

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 30. september drög að forvarnaáætlun sem lögð voru fram af forvarnanefnd. Örn Ævarsson, forvarnafulltrúi, er farin í námsleyfi og mun Jón Júlíusson sinna starfi forvarnafulltrúa í fjarveru Arnars.

2. október 2009 Forvarnadagur

Forvarnadagurinn var haldinn hátíðlegur í grunnskólum landsins þann 30. september meira

31. ágúst 2009 Fræðsla um ADHD fyrir foreldra

Laugardagana 10. og 17. október munu ADHD samtökin halda fræðslunámskeið fyrir foreldra foreldra og forráðamenn barna með ADHD. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að foreldrar öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. meira

30. júlí 2009 Sniðgöngum auglýstar áfengistegundir

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hvetja foreldra/forráðamenn og alla þá aðilar sem hafa velferð æskunnar að leiðarljósi að sýna samstöðu í verki og sniðganga auglýstar áfengistegundir. meira

11. júní 2009 Lokað fyrir einelti

Vodafone hefur lokað fyrir aðgang að vefsíðunni ringulreid.org en þar mun hafa farið fram gróft, rafrænt einelti og ærumeiðandi ummæli.meira

10. júní 2009 Nýr formaður SAMKÓP

Á aðalfundi SAMKÓP, sem haldinn var í Salaskóla 4. júní s.l., var m.a. annars kosinn nýr formaður samtakanna. meira

29. mai 2009 Aðalfundur SAMKÓP 4. júní 2009

Aðalfundur SAMKÓP verður haldinn í Salaskóla fimmtudaginn 4. júní kl. 20:00. meira

27. mai 2009 Nýleg reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla

Allir nemendur í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla skulu gangast undir próf samkvæmt 1. mgr. og nánari fyrirmælum reglugerðar sem nýlega var gefin út - meira

9. mai 2009 Ný lög um náms- og starfsráðgjafa

Í bréfi frá Heimili og skóli og Félag náms- og starfsráðgjafa (FNS) er vakin athygli á nýsamþykktum lögum um náms- og starfsráðgjafa meira

17. apríl 2009 Börn og unglingar í kreppu - hvað er til ráða?

Næstu miðvikudaga munu samtökin Vímulaus æska / Foreldrahús bjóða foreldrum til fræðslu- og kynningar um úrræði fyrir börn í vanda. Þar verður foreldrum/ forráðamönnum barna einnig boðin fræðsla um tilfinningar og áhættuhegðun unglinga og hvernig aukið álag í fjölskyldum hefur áhrif á samskipti og líðan á heimilum. sjá meira

17. apríl 2009 Mikilvægi sjálfboðaliðastarfa.

Næsti morgunverðarfundur hjá Náum áttum hópnum verður haldinn 22. apríl kl. 8:15 á Grand-hóteli - sjá meira

17. apríl 2009 Glærur frá áhugaverðum fyrirlestri Blátt áfram

Um fimmtíu gestir mættu á mjög áhugaverðan fyrirlestur Sigríðar Björnsdóttur frá samtökunum Blátt áfram, sem haldinn var í Hjallaskóla 26. mars s.l. Í erindinu sagði Sigríður meðal annars frá sláandi niðurstöðum kannana um algengi kynferðislegs ofbeldis gegn börnum, hver væru merkin sem við þurfum að vera vakandi fyrir og hvað við getum lagt af mörkum til að koma í veg fyrir ofbeldið. sjá nánar

13. mars 2009 Fyrirlestur á vegum SAMKÓP um forvarnarverkefnið Blátt áfram og hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum.

Fyrirlesturinn verður haldinn í Hjallaskóla fimmtudaginn 26. mars 2009 kl. 20:00
og er ætlaður foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum. meira

12. mars 2009 Málþing Sjónarhóls verður haldið þann 19. mars n.k. og verður efni málþingsins að þessu sinni “Félagsleg staða barna með sérþarfir”.

Hver ræður för? Málþing um félagslega stöðu barna með sérþarfir haldið á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík. Fimmtudaginn 19. mars 2009, kl. 12.30-17.00. sjá meira

12. mars 2009 Eineltisáætlun Vatnsendaskóla

Vatnsendaskóli er nýlega búin að klára áætlun sína gegn einelti og setja hana á heimasíðuna sína. sjá meira

12. mars 2009 Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga

Morgunverðarfundur Náum áttum verður haldin miðvikudaginn 18. mars nk. á Grand hóteli kl. 8:15 - 10:00 Yfirskrift fundarins þessu sinni er „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga" meira

4. mars 2009 Börn og unglingar í kreppu - hvað er til ráða? - Ókeypis fræðslufundir

Næstu miðvikudaga munu samtökin Vímulaus æska / Foreldrahús bjóða foreldrum til fræðslu- og kynningar um úrræði fyrir börn í vanda.
Þar verður foreldrum/ forráðamönnum barna einnig boðin fræðsla um tilfinningar og áhættuhegðun unglinga og hvernig aukið álag í fjölskyldum hefur áhrif á samskipti og líðan á heimilum. meira

3. mars 2009 Fermingarbörn ættu ekki að fara í ljós

Nú þegar fermingar fara í hönd hefst átak Félags íslenskra húðlækna og fleiri aðila sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Vakin er athygli á því að börn og unglingar eru næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. - sjá meira

3. mars 2009 Fundur Heimilis og skóla með fulltrúum foreldraráða nokkurra framhaldsskóla

Markmiðið fundarins var að ræða stofnun og starfsemi nýrra foreldraráða í framhaldsskólum samkvæmt nýjum framhaldsskólalögum frá 12. júní 2008. meira

3. mars 2009 Fréttatilkynning frá Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum.

Undanfarið hefur staðið yfir markviss áfengisauglýsingaherferð. Tilefnið “20 ára afmæli bjórsins”. Sem fyrr þá er auglýsingum beint sérstaklega að börnum og unglingum. Þrátt fyrir fjölda dóma vegna sambærilegra auglýsinga þá brjóta hagsmunaaðilar lögin dag út og dag inn að virðist átölulaust. Viðskiptasiðferði þessara aðila er á lægsta plani og virðing fyrir lögvörðum réttindum barna og unglinga er engin. meira

16.feb. 2009 Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkisins. Morgunverðarfundur 18. febrúar 2009 kl. 8:15 - 10:00

Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. febrúar og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning - sjá meira

5.feb. 2009 Málþing um rafrænt einelti

Í tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15. Málþingið verður einnig sent út áf vefnum - sjá meira

5.feb. 2009 Góð og örugg notkun á netinu

SAFT vakningarverkefni um jákvæða og örugga notkun barna og unglinga á netinu er að hefjast í grunnskólum Kópavogs í samvinnu Heimilis og skóla og forvarnarnefndar Kópavogs. SAFT er skammstöfun fyrir samfélag, fjölskyldu og tækni. Tímasetningar fyrirlestra verða auglýstar á heimasíðum viðkomandi grunnskóla. - sjá meira

5.feb. 2009 Umsjón með foreldraröltsvöktum

Á heimasíðu SAMKÓP má nú finna ábendingar fyrir umsjónarmenn foreldrarölta og tillögur að skilaboðum til bekkjarfulltrúa í tengslum við boðun foreldra á röltvaktir - sjá meira

13.jan. 2009 Ný heimasíða Foreldrafélags Lindaskóla

Við óskum foreldrum í Lindaskóla innilega til hamingju með nýja heimasíðu foreldrafélagsins. Frábært framtak hjá ykkur - sjá meira

13.jan. 2009 Samráðsfundur foreldrarölta

Annar samráðsfundur vetrarins verður haldinn á lögreglustöðinnii við Dalveg mánudaginn 19. janúar kl. 20. Mikilvægt er að foreldrasamfélag allra grunnskólanna í Kópavogi eigi a.m.k. einn fulltrúa á fundinum. Hlökkum til að sjá ykkur!

13.jan. 2009 Kynningarfundur um nýja menntastefnu

Kynningarfundur um nýja menntastefnu verður haldinn í húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands (gamla KHÍ) Skriðu, 19. janúar 2009. Fundurinn hefs kl. 20.00 og er öllum opinn.

13.jan. 2009 Reglugerð um skólaráð

Menntamálaráðuneytið er búið að gefa út reglugerð varðandi skólaráð - sjá meira

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 22-Jan-2010 @ 02:19 GMT.