OgVodafone

Toyota

 

10.nóv. 2008 Kosning fulltrúa foreldra í skólaráð

Heimili og skóli hafa lagt fram tillögur að starfsreglum fyrir foreldrafélög varðandi kosningu í skólaráð. meira

9.nóv. 2008 Samstíga - Vefrit Heimilis og skóla- landssamtaka foreldra 6. tbl. 2008

Sérstök kynning á samtökunum. meira

5. nóv. 2008 Ráðstefna um Netnotkun barna og unglinga og ábyrgð foreldra

Áttu barn eða ungling sem finnst gaman að ferðast um á netinu? Ef svo er þá átt þú og barnið þitt stefnumót við SAFT og Símann á Háskólatorgi, laugardaginn 8. nóvember frá kl. 10.30-14.00. meira

5. nóv. 2008 Skýrsla um foreldrastarf í Kópavogsskóla á árunum 1990 - 2008

Á heimasíðu Kópavogsskóla má finna fróðlega skýrslu um foreldrasamstarf í Kópavogsskóla á árunum 1990 - 2008. Framundan eru tímamót í foreldrasamstarfi skólans þar sem gert er ráð fyrir að fullskipað skólaráð taki til starfa í upphafi ársins 2009, í samræmi víð ný grunnskólalög.

4. nóv. 2008 Forvarnardagurinn 2008 - 6. nóvember

Forvarnardagur 2008 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. meira

3. nóv. 2008 Hönd í hönd

Kópavogsbær, prestar í Kópavogi, Menntaskólinn í Kópavogi, heilsugæslan, Kópavogsdeild Rauða krossins og mæðrastyrksnefnd Kópavogs hafa tekið höndum saman til að styðja við Kópavogsbúa í því erfiða ástandi sem skapast hefur við hrun á fjármálamarkaði. meira

31. okt. 2008 Nýr vefur um geðheilsu barna: Umhuga.is

Í október var opnaður nýr vefur, www.umhuga.is þar sem hægt er að nálgast á einum stað upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum og þá um leið seinna í lífinu. Þar er einnig hægt að finna upplýsingar um þunglyndi og kvíða og upplýsingar um hvert hægt er að leita til að fá aðstoð. meira

28. sept. 2008 Reynslusaga af einelti

Í Morgunblaðinu í dag birtist grein um einelti. Höfundur lýsir eineltinu frá sínu sjónarhorni og greinir frá mjög sterkum tilfinningum allt frá niðurbroti, reiði og hefnd yfir í skilning og fyrirgefningu. Á heimasíðu Hugos Þórissonar sálfræðings má lesa frásögn hans í heild sinni.

22. sept. 2008 Líf án eineltis

Ingibjörg Helga Baldursdóttir og samstarfsfólk hennar hefur nú hrundið á stað þjóðarátaki gegn einelti með því að stofna samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda. meira meira

12. sept. 2008 Skólaráð

Fulltrúaráðsþing Heimils og skóla var haldið í Álftamýraskóla í gær. meira

11. sept. 2008 Menntaþing 12. sept. 2008

Ný menntastefna verður kynnt á Menntaþingi á morgun - sjá

11. sept. 2008 Skólaráð

Ný grunnskólalög tóku gildi frá og með 1. júlí 2008. Samkvæmt lögunum tekur skólaráð við af foreldraráði sem verður lagt niður.

11. ágúst 2008 SAMKÓP - samtök allra foreldrafélaga í Kópavogi

Við minnum foreldra á lagabreytingar sem samþykktar voru á aðalfundi SAMKÓP síðast liðið vor, en þær fela meðal annars í sér að nú eru samtökin samtök allra foreldrafélaga í Kópavogi.meira

26. júlí 2008 Veist þú hvað barnið þitt ætlar að gera um verslunarmannahelgina?

Í tengslum við verslunarmannahelgina eru foreldra og foráðamenn hvattir til að hafa velferð barna sinna í huga og svara neitandi ósk um að fá að fara á útihátíð ef barnið er ekki orðið 18 ára. Aftur á móti er vel hægt að verða við óskinni ef foreldrar eða aðrir fullorðnir eru með í för. Þeir fullorðnu gefa þá unga fólkinu nokkuð lausan tauminn – en sleppa honum ekki.meira

18. júní 2008 Dómar vegna áfengisauglýsinga

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fagna nýlega uppkveðnum dómum vegna áfengisauglýsinga. Í fréttatilkynningu samtakanna kemur fram að samtökin telja ánægjulegt hve afdráttalausir þessi dómar eru. Markmið nýstofnaðrar foreldrasamtaka er að berjast gegn birtingu ólöglegra áfengisauglýsinga og bættu auglýsingasiðferði með sérstakri áherslu á vernd barna og unglinga.meira

17. júni 2008 Höndlaðu hamingjuna á unglingsárunum

Forvarnanefnd Kópavogsbæjar hefur afhent grunnskólum Kópavogs bekkjarsett af bókinni „Höndlaðu hamingjuna á unglingsárunum“. Bækurnar eru eign hvers skóla en eiga að nægja fyrir einn bekk í einu. meira

15. maí 2008 Hópastarf í Kópavogsskóla - góð hugmynd fyrir komandi skólaár

Vorið 2007 veitti foreldrafélag Kópavogsskóla okkur leyfi til birta bækling þeirra sem kynnir öflugt samstarf foreldra. Nú er rétti tíminn til að huga að undirbúningi fyrir komandi skólaár og því tilvalið að spá í bæklinginn. meira

14. maí 2008 Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum

Markmið nýstofnaðrar foreldrasamtaka er að berjast gegn birtingu ólöglegra áfengisauglýsinga og bættu auglýsingasiðferði með sérstakri áherslu á vernd barna og unglinga.meira

12. maí 2008 Aðalfundur SAMKÓP mánudaginn 19. maí kl. 20:00 í Snælandsskóla

Í framhaldi af aðalfundinum mun Hugó Þórisson sálfræðingur flytja fróðlegt og skemmtilegt erindi. meira

20. apr. 2008 .....allir hinir mega það.....

Fræðandi og skemmtilegir fundir um jákvæðar forvarnir eru nú haldnir í öllum grunnskólum Kópavogsbæjar fyrir forráðamenn barna í 7. bekk. meira

20. apr. 2008 Stjórnendaþjálfun fyrir leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra í Kópavogi

Kópavogsbær býður leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum í leikskólum í rekstri bæjarins upp á stjórnendanám til að efla fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði leikskólastjóra í daglegum rekstri. meira

18. apr. 2008 Framtíðarsýn fyrir grunnskólastarf til ársins 2020 - kynningarfundur 30. apríl 2008

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélags Íslands og Félags grunnskólakennara hafa á undaförnum vikum haldið kynningarfundi vítt og breitt um landið til þess að kynna afrakstur vinnu við mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir grunnskólastarf til ársins 2020. Kynningarfundur verður haldinn þann 30. apríl í Kennaraháskóla Íslands og verður hægt að fylgjast með honum á netinu. meira

17. apr. 2008 Fulltrúaráðsfundur SAMKÓP

Það var góður hópur foreldra sem mætti á fulltrúaráðs SAMKÓP s.l. mánudagskvöld. Fulltrúarnir voru 30, frá öllum grunnskólum Kópavogs. meira

3. apr. 2008 Hvatningarbréf frá SAMAN-hópnum

Með jákvæðu viðhorfi, samstarfsvilja og samvinnu hefur tekist að skapa ánægjulega upplifun fyrir unglinga og fjölskyldur þeirra við lok samræmdra prófa. Það er von SAMAN-hópsins að sameiginlegt markmið og samvinna haldi áfram því þannig hlúum við best að börnum okkar og ungmennum. meira

3. apr. 2008 Dómur í svokölluðu Mýrarhúsaskólamáli.

Á heimasíðu Heimilis og skóla má finna tilkynningu frá stjórn samtakanna vegna dóms í svokölluðu Mýrarhúsaskólamáli. meira

7. mar. 2008 Foreldrafélag MK

Á heimasíðu MK má m.a. finna lög foreldrafélagsins og fundargerðir. meira

7. mar. 2008 Heimili og skóli óskar eftir tilnefningum til foreldraverðlauna

Síðasti skiladagur tilnefninga er 4. apríl 2008. Í fyrra hlaut Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir samræmingu skóladags og æfingatíma í samvinnu við bæjaryfirvöld, foreldra og grunnskóla Seltjarnarness. Guðlaug Snorradóttir og starfsfólk Nýbúadeildar við Hjallaskóla hlutu hvatningarverðlaun Heimilis og skóla, fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa. meira

29. feb. 2008 Snertir Pisa skólagöngu barnanna minna?

Fræðslukvöld fyrir foreldra um PISA-könnunina verður haldið þriðjudaginn 4. mars kl.20:00—22:00 i Kennaraháskóla Íslands v. Stakkahlíð.

28. feb. 2008 Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar

Á fræðslufundi SAMKÓP sem haldinn var í Smáraskóla í kvöld fengu áhugasamir foreldrar meðal annars að kynnast áhrifum mismunandi uppeldishátta og vænlegum aðferðum til að hlúa að þroska barna og unglinga. meira

28. feb. 2008 Hugsað um barn - opið námskeið 6. og 11. mars 2008

Námskeiðið "HUGSAÐ UM BARN" er opið öllum unglingum í 8. og 9. bekk og foreldrum þeirra. Þetta er vinsælt námskeið og hefur verið látið vel af því, en einungis verður hægt að halda eitt námskeið í vetur vegna þess hversu búnaður og ráðgjafar eru bókaðir. Hér gildir því fyrstir til að skrá sig komast að.

28. feb. 2008 Málþing um Olweusar-verkefnið gegn einelti

Málþing um Olweusaráætlunina á Íslandi verður haldið föstudag 29. febrúar 2008. Spennandi þing þar sem mikilvægum spurningum verður svarað? meira

19. feb. 2008 Ég og bekkurinn minn

Markmiðið með verkefninu Ég og bekkurinn minn er m.a. að veita foreldrum og börnum upplýsingar um hvert og eitt barn í bekknum sem og bakgrunn þess til að stuðla að gagnkvæmum skilningi og virðingu og að skapa góðan grundvöll fyrir öflugt samstarf fjölskyldna og skólans. meira

19. feb. 2008 Léttara líf

Skýrslu faghóps forsætisráðherra um bætt heilbrigði þjóðarinnar, frá 11. september 2006, er hægt að skoða hér. Í Kópavogi er unnið að stefnumótun í tengslum við verkefni Lýðheilsustöðvar og á SAMKÓP fulltrúa í þeim vinnuhópi.

19. feb. 2008 Hvernig má efla velferð stjúpfjölskyldna?

Málþing verður haldið 22. febrúar að frumkvæði Félagsráðgjafafélags Íslands og Félags stjúpfjölskyldna. meira

14. feb. 2008 Er barnið þitt þolandi eineltis? Tökum höndum saman og komum í veg fyrir einelti.

Í næsta Kópavogspósti birtast 4 auglýsingar frá SAMKÓP, þar af eru 2 auglýsingar varðandi aðgerðir gegn einelti.meira

13. feb. 2008 Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla

Foreldrasamningurinn hefur verið endurútgefinn og heitir nú foreldrasáttmálinn.meira

11. feb. 2008 Þú ert það sem þú gerir á netinu

SAMKÓP hvetur foreldra til að taka þátt í málþingi sem haldið er í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum, þriðjudaginn 12. febrúar 2008. meira

1. feb. 2008 Svefnlausar nætur hjá MK nemum?

Næsta helgi gæti orðið erfið en skemmtileg hjá hópi MK-inga. Í áfanganum HUB102, Hugsað um barn, eru nemendur fræddir um foreldrahlutverkið og afleiðingar ótímabærrar þungunar með því að fá þeim í hendur svokallað raunveruleiknibarn. Það er brúða sem lítur út eins og ungabarn en er með tölvuheila. meira

1. feb. 2008 Þú ert það sem þú gerir á netinu.

Nú er komið að almenningi að kjósa á Netinu um það verkefni sem þeim finnst skara fram úr í hverjum flokki í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis. meira

21. jan. 2008 Andstaða gegn frumvarpi um breytingu á lögum varðandi sölu á áfengi og tóbaki.

Forvarnanefnd Kópavogs og bæjarstjórn Kópavogs hafa lýst yfir andstöðu gegn frumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. Reynsla annara þjóða og rannsóknir hafa sýnt að aukið aðgengi að áfengi leiðir af sér meiri áfengisneyslu meðal ungs fólks. Þetta vinnur þvert á markmið forvarnanefndar Kópavogs sem m.a. er að draga úr neyslu ungs fólks og skapa börnum og ungmennum jákvætt og heilbrigt umhverfi til að alast upp í. meira

5. jan. 2008 Lesskilningur barna bestur í Kópavogi

Nemendur í grunnskólum í Kópavogi komu best út allra íslenskra nemenda í PISA-könnuninni þar sem lesskilningur fimmtán ára barna var mældur. Þeir eru einnig í hópi þeirra bestu í stærðfræði og náttúrufræði. sjá meira

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 07-Apr-2010 @ 02:21 GMT.