OgVodafone

Toyota

 

10. des. 2007 Gleðilegt ár!

SAMKÓP óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

10. des. 2007 Í jólaboði til ömmu bróður míns

Nú þegar hin mikla fjölskylduhátíð nálgast standa yfir samningaviðræður í mörgum fjölskyldum um hvar börnin eigi að vera um jól og áramót. sjá meira

10. des. 2007 Nýr hjálparvefur - örugg netnotkun

Nýr hjálparvefur,netsvar.is fyrir almenning varðandi örugga netnotkun hefur verið opnaður.

7. des. 2007 www.nymenntastefna.is

Menntamálaráðuneytið hefur opnað nýjan vef sem heitir ný menntastefna www.nymenntastefna.is þar sem fjögur ný frumvörp menntamálaráðherra eru kynnt. Af vefnum er hægt að senda fyrirspurnir til menntamálaráðherra.

27. nóv. 2007 Hagir og líðan barna í Kópvogi

Framundan eru fundir í öllum grunnskólum bæjarins á morgnana kl 8.10 - 9.10 þar sem kynntar verða niðurstöður úr rannsókn Rannsóknar og greiningar um hagi og líðan meðal barna í 5. - 7. bekk við grunnskóla Kópavogs. Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna - enda eru þeir mikilvægasti hlekkurinn í forvarnarkeðjunni. - meira

25. nóv. 2007 Leið 28 - Tómstundavagninn

Nú stendur yfir endurskoðun á leiðarkerfi Strætó bs. fyrir veturinn 2008 - 2009 og því er nauðsynlegt að láta í sér heyra ef það er eitthvað sem betur má fara(www.straeto.is). Leið 28 - Tómstundavagninn - ætti að draga úr akstri foreldra með börn til og frá tómstundaiðkun. SAMKÓP hvetur foreldra til að kynna sér leið 28 og jafnframt hvetum við Strætó bs. til að tryggja að leiðin verði ekin á 15 til 20 mínútna fresti í stað 30 mínútna.

24. nóv. 2007 Bakhjarlar Kópavogsskóla

Þann 20. nóvember voru undirritaðir samningar um styrki til skólastarfs næstu 2 til 3 ár. Styrkveitendur eru Milestone, Toyota, Samskip, Hreint ehf., Landsvirkjun og Olís. Styrkjunum skal varið í samræmi við gildisgrunn Kópavogsskóla hverju sinni með sérstakar áherslur á list- og verkgreinar. meira

23. nóv. 2007 Náum áttum - Hvert stefnir?

Miðvikudaginn 28. nóvember er boðað til fundar um forvarnarmál á Íslandi undir yfirskriftinni: Hvert stefnir? meira

21. nóv. 2007 Forvarnadagurinn

Í dag er Forvarnardagurinn haldinn í annað sinn. Eitt af markmiðunum með Forvarnardeginum á Íslandi er að virkja nemendur, skóla og samfélagið allt í baráttunni gegn fíkniefnum. meira

24. okt. 2007 Lögreglan varar við e-töflum og salapartíum.

Á blaðamannafundi sem fíkniefnadeild lögreglunnar efndi til í gær varaði lögreglan sérstaklega við auknu framboði e-taflna. Fram kom að undanfarið hefur verið lagt hald á ryðrauðar töflur sem líktust gostöflum og í þær væri þrykkt merki sem sýndi broskall og hvítar e-töflur með merkinu 007. meira

24. okt. 2007 Hver á eiginlega að ala börnin upp, foreldrar eða kennarar?

Nanna Kristín Christiansen leitast við að finna svör við spurningunni: "Hver á að annast uppeldi barna, eru það foreldrar eða kennarar? - sjá nánar grein hennar.

24. okt. 2007 Deildarstjórar í grunnskólum

Haustið 2005 var gerð rannsókn á afstöðu skólastjóra og kennara til starfa deildarstjóra í grunnskólum - sjá nánar.

21. okt. 2007 Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?

Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu hefur ákveðið að efna til málþings undir heitinu "Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?" laugardaginn 27. október n.k. frá kl. 13:00 til 17:00 á Grand Hótel. meira

15. okt. 2007 Vimuvarnavikan

Vímuvarnavika sem stendur dagana 13. – 20. október 2007 er samstarfsverkefni tuttugu félagasamtaka og er nú haldin í fjórða sinn. Markmið vikunnar er að: meira

13. okt. 2007 Glærur frá fræðsufundi SAMKÓP

Um leið og við þökkum Páli fyrir frábæran fyrirlestur og áhugasömum foreldrum fyrir samveruna birtum við glærur, með góðfúslegu leyfi frá Páli. sjá glærur Δ

8. okt. 2007 Fræðslufundur SAMKÓP - fimmtudaginn 11. október 2007

SAMKÓP býður til fræðslufundar n.k. fimmtudag kl. 20:00 í Hörðuvallaskóla. Á fundinum mun Páll Ólafsson m.a. upplýsa okkur um mikilvægi foreldra í skólastarfinu og kenna okkur leiðir til að virkja aðra foreldra.

8. okt. 2007 Tómstundavagninn - leið 28

"Allir í stætó, allir í strætó, enginn með ......... því hann er svo mikill svindlari" sungu börnin hér áður. Þetta á einnig vel við í dag þar sem börn og unglingar geta notfært sér leið 28, tómstundavagninn, til að komast til og frá tómstundaiðkun.

4. okt. 2007 Skólafatnaður

Hefur þitt foreldrasamfélag velt fyrir sér að taka upp einhvers konar skólafatnað? Í mörgum skólum hefur reynslan af slíkum fatnaði verið mjög góð en sitt sýnist hverjum..... meira

4. okt. 2007 Upplýsingar frá lögreglunni til foreldra

Lögreglan í Kópavogi mun í framtíðinni senda foreldrum við grunnskóla Kópavogs upplýsingar um ýmislegt sem gæti komið þeim að gagni. Þessi nýbreytni er vel til þess fallin að gera góðan bæ enn betri. meira

3. okt. 2007 Einelti

Á fræðslufundi SAMKÓP þann 18. september minnti Helga Margrét okkur á að nauðsynlegt er að vera stöðugt á varðbergi gagnvart einelti. meira

28. sept. 2007 Ókeypis námskeið í foreldrafærni

ÓB-ráðgjöf býður foreldrum barna í leikskólum Kópavogs námskeið sem ber nafnið Núll til sex ára - Uppeldi barna frá fæðingu til sex eða sjö ára aldurs. meira

27. sept. 2007 Fulltrúaráð SAMKÓP - fræðslufundur bekkjarfulltrúa 11. október

Í 4. gr. laga SAMKÓP kemur fram að foreldrafélög og foreldraráð skulu leitast við að eiga fulltrúa á ÖLLUM þeim fundum sem SAMKÓP boðar til, hvort sem um er að ræða aðalfund, samráðsfund, fræðslufund eða aðra fundi. Jafnframt geta skólar, sem ekki eiga fulltrúa í stjórn eða varastjórn SAMKÓP, óskað eftir að eiga áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum samtakanna. meira

7. sept. 2007 Netfang SAMKÓP

Vekjum athygli á því að netfang samtakanna - samkop@samkop.is - er orðið virkt.

7. sept. 2007 Hlutverk bekkjarfulltrúa

Ætlar þú að gefa kost á þér sem bekkjarfulltrúi í haust?meira

4. sept. 2007 Foreldrarölt

Foreldrarölt er að komast á fullt skrið í Kópavogi eftir sumarfrí.meira

1. sept. 2007 Útivistartími breyttist 1. september

Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13 – 16 ára börn mega vera úti til kl. 22. Mikilvægt er að árétta að þetta er sá tími sem þau mega vera úti, foreldrar og forráðamenn geta að sjálfsögðu þrengt þennan tímaramma.meira

11. ágúst 2007 Nýtt skólaár framundan - hvað ber að hafa í huga?

Nú styttist í að nemendur hefi nýtt skólaár að loknu sólríku sumri. Af því tilefni hefur Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimilis og skóla, tekið saman góða minnispunkta fyrir foreldra og aðstandendur skólabarna.meira

11. ágúst 2007 Aðalnámskrá grunnskóla

Menntamálaráðuneytið hefur lokið við að endurskoða og gefa út á rafrænu formi aðalnámskrar grunnskóla. Námskrárnar koma til framkvæmda í skólum frá og með skólaárinu 2007-2008 eftir því sem við verður komið - meira

30. maí 2007 Morgunverðarfundur Náum áttum (N8) þriðjudaginn 5. júní kl. 8:15

Umræðuefndi er: "Sumarið er tíminn / samvera - útihátíðir - Hver er ábyrgur ?'''

30. maí 2007 Íslensku menntaverðlaunin afhent í Ingunnarskóla

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson veitti í kvöld Íslensku menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn.meira

15. maí 2007 Hópastarf í Kópavogsskóla - góð hugmynd fyrir komandi skólaár

Foreldrafélag Kópavogsskóla veitti okkur leyfi til birta bækling þeirra sem kynnir öflugt samstarf foreldra. Nú er rétti tíminn til að huga að undirbúningi fyrir komandi skólaár og því tilvalið að spá í bæklinginn. meira-'

15. maí 2007 Aðalfundur SAMKÓP

Aðalfundur SAMKÓP var haldinn 15. maí og í framhaldi af honum flutti Eyþór Eðvarðsson fræðandi og skemmtilegt erindi.meira

15. maí 2007 Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Guðlaug Snorradóttir og starfsfólk Nýbúadeildar við Hjallaskóla hlutu hvatningarverðlaun Heimilis og skóla, fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa. meira

14. maí 2007 Próflokum fagnað á heilbrigðan hátt

Í síðustu viku lauk samræmdum prófum í grunnskólunum. Unglingar í Kópavogi fögnuðu áfanganum með því að bregða sér af bæ í skipulögðum ferðum einstakra skóla og aðfararnótt laugardagsins var skemmtuninn haldið áfram með "Menningarnæturdagskrá" félagsmiðstöðvanna.meira

9. maí 2007 Elskar þú barnið þitt nógu mikið?

Í 10. tölublaði Kópavogspóstsins, sem dreift var í dag, birtist áminning frá SAMKÓP á blaðsíðu 4 undir yfirskriftinni "Elskar þú barnið þitt nógu mikið?"meira

6. maí 2007 Fundarboð vegna aðalfundur SAMKÓP - þriðjudaginn 15. maí kl. 20:00 í Hjallskóla

Minnum foreldra á að SAMKÓP er félag allra foreldra í Kópavogi og því eigum við öll erindi á aðalfund samtakanna. Í framhaldi af aðalfundinum mun Eyþór Eðvarðsson flytja fróðlegt og skemmtilegt erindi. Við hlökkum til að sjá þig!.meira

3. maí 2007 Menningarnótt félagsmiðstöðva

Föstudagskvöldið 11. maí kl. 20:00 hefst Menningarnótt félagsmiðstöðvanna í Kópavogi. Dagskráin stendur alla nóttina með ýmsum menningarviðburðum og er ætluð unglingum í 8., 9. og 10. bekkja í grunnskólum Kópavogs gegn leyfisbréfum undirrituðum af forsjármönnum. Dagskránni lýkur kl. 8:00 að morgni laugardagsins 12. maí.

3. maí 2007 Við vökum yfir þér!

Í nýjasta tölublaði Kópavogspóstsins (bls. 13) er auglýsing frá SAMKÓP þar sem minnt er á foreldraröltið í Kópavogi og bæklinginn"Við vökum yfir þér!"

3. maí 2007 Samræmdu prófin og ábyrgð foreldra

Í ár ber svo við að helgin eftir að samræmdum prófum lýkur er kosningahelgi og Eurovisionhelgi. Mikilvægt er að foreldrar standi saman og leyfi ekki eftirlitslaus partý á sínum heimilum heldur séu til staðar og samfagni á þessum tímamótum. Við brýnum fyrir foreldrum, systkinum, frændum og frænkum að sýna væntumþykju sína í verki, virða landslög og kaupa ekki áfengi fyrir ungmenni yngri en 20 ára.meira

28. apríl 2007 Aðalfundur SAMKÓP - þriðjudaginn 15. maí kl. 20:00 í Hjallskóla

Minnum foreldra á SAMKÓP er félag allra foreldar í Kópavogi og því eigum við öll erindi á aðalfund samtakanna. Í framhaldi af aðalfundinum mun Eyþór Eðvarðsson flytja fróðlegt og skemmtilegt erindi. Við hlökkum til að sjá þig!

25. apríl 2007 Samráðsfundur foreldrarölta - Menningarnótt félagsmiðstöðva

Mánudagskvöldið 23. apríl var þriðji samráðsfundur foreldrarölta haldinn á lögreglustöðinni við Dalveg. Fundurinn var fjölmennur og umræður líflegar. meira

20. apríl 2007 Einmana börn - líðan íslenskra barna og úrræði

Þriðjudaginn 24. apríl verður Náum áttum hópurinn með morgunverðarfund þar sem umfjöllunarefnið er einsemd barna - sjá nánar.

16. apríl 2007 SAMAN Í SÁTT - þróunarverkefni í Digranesskóla

Uppskeruhátið þróunarverkefnisins SAMAN Í SÁTT, sem helgað er baráttu gegn einelti, var haldin í Digranesskóla fimmtudaginn fyrir páskafrí - meira

28. mars 2007 Vitundarvakning í foreldrasamfélaginu

Fulltrúaráðsþing Heimilis og skóla var haldið í Hofsstaðaskóla dagana 23. og 24. mars. meira

11. mars. 2007 Bekkjarmöppur á Netinu

Á fundum SAMKÓP í janúar og febrúar hefur verið rædd sú hugmynd að SAMKÓP beiti sér fyrir því að bekkjarmöppur/foreldrahandbækur verði einnig aðgengilegar á Netinu t.d. í gegnum vefsíður skólanna. meira

10. mars. 2007 Kjaramál kennara - tillaga ríkissáttasemjara samþykkt

Fulltrúar KÍ annars vegar og fulltrúar Launanefndar sveitarfélaga samþykktu tillögu ríkissáttasemjara meira

5. mars. 2007 Svæðasamtök foreldra

Foreldraráð og foreldrafélag Grunnskóla Seltjarnarness hefur opnað heimasíðu www.nesforeldrar.is. Í febrúar voru stofnuð tvö ný svæðasamtök - SAMTAKA á Akureyri og Mosforeldrar í Mosfellsbæ.

1. mars. 2007 Ályktun frá stjórn Heimilis og skóla

Á heimasíðu Heimili og skóli má finna ályktun frá stjórn samtakanna þar sem hún lýsir áhyggjum sínum yfir því að Launanefnd sveitarfélaga og Félag grunnskólakennara hafa slitið viðræðum um framkvæmd endurskoðunarákvæðis í samningum aðila frá nóvember 2004.

27. feb. 2007 Kjaramál kennara

Stjórn SAMKÓP skorar á skólanefnd og bæjaryfirvöld Kópavogs um að leggja sitt af mörkum til þess að tryggja að kjör kennara verði bætt og þar með lagður grundvöllur til að tryggja starfsfrið í grunnskólum bæjarins. meira

19. feb. 2007 Niðurstöður úr könnun meðal foreldra barna í Hörðuvallaskóla

Á heimasíðu Hörðuvallaskóla er hægt að skoða niðurstöður úr könnun sem gerð var meðal foreldra við skólann. meira

15. feb. 2007 Þróun kostnaðar á fræðslusviði Kópavogsbæjar

Fræðsluskrifstofa Kópavogsbæjar hefur safnað saman lykiltölum kostnaðarliða yfir nokkurra ára tímabil og sett upp í súlurit. Þessar upplýsingar er að finna á heimasíðu Kópavogsbæjar.

13. feb. 2007 Viðbrögð foreldra frábær!

SAMKÓP þakkar foreldrum frábær viðbrögð við áskorun varðandi endurskoðun skólastefnu Kópavogs - sjá frétt hér að neðan. Til að tryggja að allar ábendingar skili sér réttilega til okkar viljum við taka fram að við munum staðfesta móttöku ábendinganna með tölvupósti.

13. feb. 2007 Endurskoðun skólastefnu Kópavogs. Hver er skoðun foreldra?

Í bréfi SAMKÓP til foreldra og forráðamanna óska samtökin eftir ábendingum, tillögum og hugmyndum í tengslum við endurskoðun skólastefnu Kópavogs. Meginhugsunin er sú að allir foreldrar hafi tækifæri til að koma sínum ábendingum á framfæri til fulltrúa sinna. Vinsamlegast sendið ábendingar ekki síðar en sunnudaginn 18. febrúar á netfangið www.samkop.is.meira

11. feb. 2007 Svar frá skólanefnd varðandi forvarnaverkefnið "Hugsað um barn"

Í fundargerð frá fundi skólanefndar þann 5. febrúar kemur fram að forvarnaverkefnið "Hugsað um barn" mun ekki njóta sérstaks styrks frá skólanefndinni. meira

11. feb. 2007 Starfsreglur foreldrarráða

Á fundi skólanefndar þann 5. febrúar greindi fulltrúi foreldar frá umræðum í SAMKÓP um hlutverk foreldraráða við grunnskólanna. meira

7. feb. 2007 Rannsóknarniðurstöður um hagi og líðan grunnskólabarna á unglingastigi.

Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 08:30 verður ofangreind skýrsla kynnt af fulltrúa Rannsóknar og greiningar í Salnum í Kópavogi. meira

4. feb. 2007 Áminning varðandi fund 5. febrúar kl. 19:30 í Kársnesskóla v. Vallargerði

SAMKÓP hefur boðað fulltrúa foreldraráða og foreldrafélaga til fundar mánudaginn 5. febrúar kl. 19:30 þar sem farið verður skólastefna Kópavogs verður til umræðu. Fulltrúar eru hvattir til að undirbúa sig sem best fyrir fundinn.meira

4. feb. 2007 Viðhorfskönnun varðandi vetrarfrí í grunnskólum

Í síðustu viku fengu foreldrar grunnskólabarna í Kópavogi tölvupóst þar sem leitað var eftir viðhorfi þeirra til vetrarfrídaga í grunnskólum.meira

30. jan. 2007 Hvert er hlutverk foreldraráða?

Foreldraráð er afar mikilvægur lögboðinn vettvangur foreldra til að koma skoðunum sínum á skólastarfi á framfæri við skólastjórnendur grunnskóla.meira

27. jan. 2007 "Það þorir enginn að hjálpa mér" - vika gegn einelti í Garaðbæ

Samstarfshópur „Gegn einelti í Garðabæ“ hefur látið hanna og gefa út bækling og veggspjöld sem minna á ógnir eineltis.meira

26. jan. 2007 Ungt fólk - skýrsla Rannasóknar og greiningar

Á heimasíðu Heimils og skóla má finna skýrsluna Ungt fólk en niðurstöður hennar voru kynntar á fundi Menntamálaráðuneytisins í gær.meira

25. jan. 2007 Netöryggisdagur 6. febrúar

Ráðstefna um siðferði á Netinu verður haldin á vegum SAFT þann 6. febrúar á Alþjóðlega netöryggisdaginn. Ráðstefnan stendur frá kl. 15:00 - 17:15 og verður haldin hjá Íslenskri erfðagreiningu, Sturlugötu 8, Reykjavík.meira

24. jan. 2007 Endurskoðun skólastefnu - undirbúningsfundur 5. febrúar kl. 19:30

SAMKÓP hefur boðað fulltrúa foreldraráða og foreldrafélaga til fundar mánudaginn 5. febrúar kl. 19:30 þar sem farið verður skólastefna Kópavogs verður til umræðu. Fulltrúar eru hvattir til að undirbúa sig sem best fyrir fundinn.meira

24. jan. 2007 Ungt fólk - Rannsóknin sem lögð var fyrir nemendur í 9. og 10. bekk

Menntamálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, fimmtudaginn 25. janúar n.k. þar sem starfsfólk Rannsóknar og greiningar munu kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar „Ungt fólk 2006“ er viðkemur menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra ungmenna.

23. jan. 2007 Handbók foreldrasamfélagsins í Snælandsskóla

Handbók Maraskóla, sem gefin var út af Heimili og skóla ætti að vera flestum fulltrúum foreldrafélaga og foreldraráða að góðu kunn. Nú hefur foreldrasamfélagið í Snælandsskóla klára að aðlaga handbókina að sínum þörfum og má sjá afraksturinn á heimasíðu skólans. Til hamingju foreldrar í Snælandsskóla!.

17. jan. 2007 Fulltrúaráðsfundur SAMKÓP

Í gærkveldi hittust fulltrúar foreldrafélaga og foreldraráða á fulltrúaráðsfundi SAMKÓP, sem haldinn var í Hjallaskóla.meira

17. jan. 2007 Brúðuleikhús Blátt áfram - Krakkarnir í hverfinu

Á heímasíðu Blátt áfram kemur fram að samtökin bjóða upp á 2 brúðuleiksýningar. Önnur er um líkamlegt ofbeldi og ætluð krökkum á aldrinum 6-8 ára og hin um kynferðislegt ofbeldi, ætluð krökkum á aldrinum 9-12 ára.

16. jan. 2007 Hópumræður - kaffihúsaform

Í foreldrasamstarfinu hefur oft reynst vel nota umræðuhópa til að virkja alla fundarmenn og ná fram fleiri sjónarhornum. "Kaffihúsaumræðuformið" er frábær leið til að ná enn meiri árangri með slíkri vinnu meira

16. jan. 2007 Breytingar á grunnskólalögunum og ný aðalnámskráð"

Í ársbyrjun tóku gildi breytingar á grunnskólalögum frá 1995, en þessi breyting er óháð heildarendurskoðun sem nú stendur yfir á grunnskólalögum. Einnig hafa verið gerðar breytingar á almennum hluta aðalnámskrá grunnskóla sem taka gildi 1. ágúst 2007. meira

14. jan. 2007 Forvarnaverkefni "Flott án fíknar"

Undir handleiðslu UMFÍ er búið að stofna 10 "Flott án fíknar" klúbba - en upphaf þessara klúbba var í Lindaskóla.meira

11. jan. 2007 Fulltrúaráðsfundur SAMKÓP

SAMKÓP boðar til fulltrúaráðsfundar þriðjudaginn 16. janúar kl. 20:00 og verður fundurinn haldinn í Hjallaskóla. meira

9. jan. 2007 Umferðarvefurinn

Við hvetjum ykkur til að skoða Umferðarvefinn sem er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskólum, kennara og foreldra.meira

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 01-Nov-2008 @ 12:30 GMT.