OgVodafone

Toyota

 

Veitum frelsi - en sýnum ábyrgð - 18 ára ábyrgð

Engin ungmenni yngri en 18 ára ættu að fara ein og eftirlitslaus á útihátíð um verslunarmannahelgina. Í flestum tilfellum gengur allt vel á slíkum hátíðum en eins og reynslan hefur sýnt hafa því miður komið upp tilvik þar sem ungt fólk hefur lent í vanda – sem væntanlega hefði mátt koma í veg fyrir hefðu foreldrar eða aðrir fullorðnir verið með í för.

Félagsmálaráðuneytið, í samstarfi við marga aðila og þeirra á meðal Lýðheilsustöð, birtir nú í tengslum við verslunarmannahelgina skilaboð og hvatningu til foreldra og foráðamanna um að hafa velferð barna sinna í huga og svara neitandi ósk um að fá að fara á útihátíð ef barnið er ekki orðið 18 ára. Aftur á móti er vel hægt að verða við óskinni ef foreldrar eða aðrir fullorðnir eru með í för. Þeir fullorðnu gefa þá unga fólkinu nokkuð lausan tauminn – en sleppa honum ekki!

Nokkur atriði ættu foreldrar að hafa í huga:

  • Elskið óhikað. Ef þið teljið það ekki gott fyrir barnið að fara á eigin vegum í ferðalag, segið nei og útskýrið af hverju þið svarið því til.
  • Hafið samband við foreldra þeirra sem unglingurinn ætlar með. Ræðið þær reglur sem þið viljið að sé fylgt s.s. varðandi áfengi og tóbak og að hópurinn fylgist alltaf að.
  • Gangið úr skugga um að það sé einhver ábyrgur fullorðinn með í för. Fáið símanúmer hjá þeim sem ætlar með þeim.
  • Farið yfir ferðaáætlun með barninu og biðjið það að hafa samband ef hún breytist. Gangið úr skugga um að barnið sé vel útbúið.
  • Öryggisnet. Látið unglinginn hafa þau símanúmer hjá ættingjum og vinum sem hann getur hringt í ef eitthvað kemur upp á ef ekki næst í ykkur.
  • Ræðið við unglinginn að þiggja aldrei far hjá neinum sem er undir áhrifum áfengis.
  • Útvegið barninu ekki áfengi. Unglingur undir áhrifum áfengis er í meiri hættu á að lenda í vandræðum. Þegar foreldrar útvega áfengi eru þeir búnir að samþykkja drykkju barnsins og þá er líklegt að unglingurinn drekki meira en bara það sem mamma og pabbi létu í bakpokann. Hafið í huga að það er lögbrot að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.

Margir foreldrar telja sig vel geta treyst sínu barni til að fara eftirlitslausum í ferðalög. Flestir unglingar standa undir því trausti. Þær aðstæður sem geta komið upp, og hafa komið upp, geta hins vegar reynst unglingum þungbærar og erfiðar.
Foreldrar hafa sýnt að með því að vera samtaka geta þeir breytt ýmsu til betri vegar t.d. reglur um útvistartíma ungmenna. Nú þarf að taka á eftirlitslausum „skemmtunum“ unglinga og þar eru foreldrar lykilaðilar.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 26-Jul-2008 @ 12:27 GMT.