|
|
Á heimsíðu fyrirtækisins - www.modirnattura.is - er fjallað um skólamatseðil fyrirtækisins. Þar segir:Við hjá Móður náttúru vitum að starfsfólk skólaeldhúsa er oft undir miklu álagi í sínu starfi. Það eru margir munnar að metta, oft við erfiðar aðstæður og í kappi við klukkuna. Skólaeldhús með metnað vilja bjóða börnum sínum upp á heilsusamlegt og fjölbreytt fæði. Kannanir hafa sýnt að vel nærð börn eru ánægðari í skólanm og allt skólastarf gengur betur. Góð næring er ein af undirstöðum þess að börn dafni vel og verði heilbrigðir og hraustir einstaklingar. Vel nært barn er ekki einungis hraustara heldur einnig glaðværara og jákvæðara. Sjálfsmynd þess eflist og það gengur öruggara út í lífið. Vegna þess að grænmetisneysla barna er oft of lítil þá ætti vel samsett máltíð úr jurtaríkinu að vera sjálfsagður kostur á skólamatseðlinum. Þá fá börnin góð flókin kolvetni en þau eru einn besti orkugjafi sem völ er á. Einnig fá þau mikið af vítamínum ásamt miklu af trefjum sem skortur er á í fæði nú til dags. Gott og gaman er heiti á matseðli sem Móðir náttúra hefur útbúið sérstaklega fyrir skólamötuneyti og leikskóla. Við fengum til liðs við okkur matvælafræðing til að hanna með okkur sælkeramáltíðir fyrir börn. Stuðst hefur verið við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um næringarþörf barna. Gott og gaman býður upp á ljúffengar hollar máltíðir þar sem réttir Móður náttúru eru notaðir ásamt uppskriftum að meðlæti sem einfalt er að framreiða. Heildarmáltíðinni fylgja svo nákvæmir útreikningar á næringargildi miðaða við ákveðnar skammtastærðir. Allir réttir Móður náttúru er hannaðir með þarfir skólaeldhúsa í huga. Þeir eru hollir, saðsamir og taka mið af matarsmekk barna. Þeir eru sérlega þægilegir í meðhöndlun og ættu því að auðvelda starfsfólki skólaeldhúsa að framreiða frábæra hollusturétti handa skjólstæðingum sínum. Það er einlæg ósk okkar hjá Móður náttúru, að verkefnið Gott og gaman geti orðið hvati að góðu samstarfi á milli Móður náttúru og skólaeldhúsa þar sem við í sameiningu getum lagt okkar af mörkum til að börnin okkar, framtíð Íslands, njóti þess besta sem völ er á. Eldhúsið ætti að vera hjarta hvers heimilis og skóla. Það að finna góðan matarilm leggja um hús og garð kætir hverja sál. Það að fá holla og góða máltíð, fallega fram borna, gefur ekki bara næringu í kroppinn heldur skapar hún líka vellíðan og ánægju þeirra sem njóta. Kærleikur úr eldhúsinu skapar betra andrúmsloft sem hefur jákvæð áhrinf á þroska barnanna. Börn eru sælkerar í eðli sínu og finnst gaman að borða það sem þeim finnst gott. Að sjálfsögðu er einstaklingsbundið hvað hverjum og einum líkar best en bragðskynið er lært og í leik- og grunnskólum gefst gullið tækifæri til að kenna börnum að meta hollan og góða mat. Þannig fá þau gott veganesti sem fylgir þeim um ókomna tíð. Aftur til baka í fréttir |