|
|
Flott án fíknarKynning á verkefninu Flott án fíknar fór fram í Vetrargarðinum í Smáralind sl. föstudag en samhliða kynningunni var einnig blaðamannafundur sem fjölmiðlar sóttu vel. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ávarp en Guðrún Snorradóttir, verkefnisstjóri, og Björn B. Bjarndal, formaður UMFÍ, kynntu verkefnið. Kynnir á fundinum var Ásthildur Helgadóttir knattspyrnukona. Nokkur hundruð krakkar komu á fundinn í Vetrargarðinum og fengu meðal annars afhentan sérhannaðan bol sem búnir hafa verið til sérstaklega fyrir verkefnið. Þessa dagana er verið að stofna níunda klúbbinn úr jafnmörgum grunnskólum vítt og breitt um landið. Flott án fíknar er verkefni sem tekur til þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Verkefnið byggist á samningsbundnu klúbbastarfi og viðburðadagskrá þar sem unglingar skemmta sér saman á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt. Flott án fíknar er íslensk hugmynd sem verið hefur í þróun í fjögur ár í Lindaskóla í Kópavogi og reynst vel. Ungmennafélag Íslands hefur tekið að sér verkefnastjórn og kynningarstörf í þeim tilgangi að að allir unglingar landsins geti notið góðs af. Verkefnið er unnið í samvinnu við Lýðheilsustöð sem styrkir það fjárhagslega og Þórólf Þórlindsson prófessor við Háskóla Íslands sem mun veita ráðgjöf í sambandi við mat á verkefninu og áframhaldandi þróun. Hugmyndafræði klúbbsins Flott án fíknar snýst um að koma í veg fyrir að unglingar byrji að fikta við tóbak og áfengi og styrkja þá í þeirri ákvörðun. Markmiðið með klúbbastarfinu er að unglingum finnist eftirsóknarvert að eyða æskunni á heilbrigðan hátt og án tóbaks og vímuefna. Rannsóknir sýna að áhrif jafningjahópsins eru mikil í lífi unglinga og því skiptir miklu máli að ungir sem aldnir standi saman um að skapa heilbrigða unglingamenningu. Ungmennafélag Íslands hvetur alla til að virða landslög um notkun tóbaks og áfengis og gera unglingsárin að góðum minningum fullorðinsáranna. Ungmennafélag Íslands býður öllum sem áhuga hafa á að kynna sér klúbbastarfið Flott án fíknar að fá kynningu hvar sem þeir eru á landinu. Allir sem starfa með unglingum geta stofnað klúbb og er verkefnið bæði aðgengilegt og auðvelt í framkvæmd. Á næstu mánuðum mun verða haft samband og boðið til frekari kynninga en öllum áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu UMFÍ í síma: 568-2929. Aftur til baka í fréttir |