|
|
HVAÐ EF? Ókeypis skemmtifræðsla fyrir foreldraLýðheilsustöð býður foreldrum nemenda í 9. og 10. bekk að sjá skemmtifræðsluna HVAÐ EF? í Hafnarfjarðarleikhúsinu dagana 13., 14. og 15. nóvember. Ýmsar leiðir eru reyndar til vekja ungt fólk til umhugsunar um hættuna samfara neyslu vímuefna. Ein þeirra er að koma fræðslunni áleiðis á skemmtilegan og nýstárlegan hátt - eins og gert er í hvað EF-skemmtifræðslunni í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Um er að ræða leiksýningu sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á mjög nýstárlegan máta farið yfir staðreyndir um neyslu vímuefna. Markmiðið er að sýna unglingum að þeir hafa val og að margar saklausar ákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér - sjá nánar Umsögn ritara SAMKÓP eftir að hafa séð sýninguna: ,,Hvað EF” er áhrifamikil leiksýningu þar sem sagðar eru sögur af ungu fólki sem hefur ánetjast vímuefnum. Auk þess er sagt frá áhrifum vímuefna á heilastarfsemi ungs fólks, hættunni af því að ánetjast efnunum og erfiðleikana við að losna undan oki fíknarinnar. Leikararnir sem allir eru í yngri kantinum ná einstaklega vel til áhorfenda með beinskeyttum leik sínum og söng en mikið er um söng og hljóðfæraleik í sýningunni. Leiksýningin ,,Hvað EF” er því hin besta skemmtun þrátt fyrir alvarlegan undirtón sem vekur mann til umhugsunar um þá áhættu sem fylgir því að nota vímuefni. Það er því ástæða til að mæla með því að foreldrar þiggi boðið og sjái þessa fróðlegu leiksýningu. Aftur til baka í fréttir |