OgVodafone

Toyota

 

Forvarnarverkefnið "Hugsað um barn" og erindi SAMKÓP til skólanefndar í október 2006.

Á fundi skólanefndar þann 5. febrúar er eftirfarandi bókað:

Lögð fram umsögn frá Félagi skólastjóra um verkefnið „Hugsað um barn.“ Að fenginni umsögn Félags skólastjóra sér skólanefnd sér ekki fært að styrkja verkefnið.

Aftur til baka í fréttir


Bréf SAMKÓP til bæjarráðs Kópavogs, dagsett 27. október 2006, var svohljóðandi:

Undanfarnar vikur hafa fulltrúar SAMKÓP fengið tækifæri til að sitja 2 fundi þar sem verkefnið ”Hugsað um barn” hefur verið kynnt auk þess sem við höfum fengið margvíslegt kynningarefni frá ÓB ráðgjöf ehf, varðandi verkefnið.

Eins og komið hefur fram í kynningum ÓB ráðgjafar ehf. undanfarin ár hefur verkefnið "Hugsað um barn" margháttað forvarnar- og fræðslugildi m.a. varðandi:
1) Ótímabæra þungun
2) Kynsjúkdóma - leghálskrabbamein
3) Jafnrétti
4) Afleiðingar af misnotkun áfengis og eiturlyfja
5) Þátttöku foreldra í forvarnarmálum

Í könnun sem gerð var eftir að verkefnið hafði verið lagt fyrir voru nemendur beðnir um að velja eitt orð sem lýsti best tilfinningum þeirra ef þeir yrðu foreldrar næsta árið. Flestir nemendur, eða 44%, töldu að orðið ”kvíðin(n))” lýsti tilfinningunum best og 23% töldu að orðið ”erfitt” ætti best við.

Umsagnir Sigríðar A. Pálmadóttur, hjúkrunarforstjóra Heilsugæslunnar í Kópavogi, og Áslaugar Birnu Ólafsdóttur, fyrrverandi skólahjúkrunarfræðings við Smáraskóla, staðfesta að hér er á ferðinni verkefni sem vert er að gefa góðan gaum. Í umsögn Sigríðar kemur fram að skólahjúkrunarfræðingar í Kópavogi hafa sótt námskeið um þessa fræðslu og hafa áhuga á taka þátt í þessu verkefni innan síns skóla. Í umsögn Sigríðar segir jafnframt að hennar sýn sé sú að þetta nái að festa rætur sem fastur liður í skólastarfinu – allavega að það náist hér í Kópavogi að vinna þetta í öllum skólum í þrjú ár svo hægt verð að gera marktæka faraldsfræðilega rannsókn á því hverju þetta breytir í hegðun/viðhorfum barna á þessu svæði og taka þá ákvörðun um áframhaldið út frá niðurstöðum rannsóknarinnar.

Mikil ánægja er með verkefnið í Smáraskóla þar sem það hefur unnið sér fastan sess í skólastarfinu. Vitað er að nokkrir skólar til viðbótar stefna að þátttöku í verkefninu, en það er von okkar hjá SAMKÓP að bæjarráð og skólanefnd stuðli að því að verkefnið standi öllum nemendum í 8. bekk til boða með því að styrkja verkefnið sérstaklega á næstu 3 árum. Með því yrði Kópavogur í fararbroddi við að efla lífsleikni grunnskólanemenda og stuðla að því að þeir taki ábyrgð á eigin heilsu og framtíð.

Samkvæmt upplýsingum frá ÓB ráðgjöf ehf. sjá þau fyrir sér að hægt verði að bjóða upp tilboðsverð fyrir grunnskóla Kópavogs miðað við að heilsugæslan (skólahjúkrunarfræðingar) sjái um fræðslu fyrir nemendur og félagsþjónustan um fræðslu fyrir foreldra, en báðir þessir aðilar lýstu yfir áhuga varðandi þátttöku árið 2004. Tilboðið hljóðar upp á 166 þús. kr. fyrir hvern skóla miðað við að a.m.k. 4 skólar taki þátt og bindi sig við 3 ára reynslutímabil.

Á stjórnarfundi SAMKÓP þann 19. október var samþykkt að hvetja Kópavogsbæ til að styðja við verkefnið og auðvelda grunnskólum bæjarins að taka það upp sem tilraunaverkefni til næstu 3ja ára. Jafnframt teljum við æskilegt að verkefninu verði fylgt eftir með rannsókn á því hverju þetta breytir í hegðun/viðhorfum barna og unglinga í Kópavogi, svo hægt verði að meta verkefnið út frá niðurstöðum rannsóknarinnar.

Virðingarfyllst,

Hrefna Gunnarsdóttir,
formaður SAMKÓP

Hjálagt:
Umsögn Sigríðar A. Pálmadóttur, hjúkrunarforstjóra á Heilsugæslu Kópavogs
Umsögn Áslaugar Birnu Ólafsdóttur, fyrrverandi skólahjúkrunarfræðings í Smáraskóla
Greinar úr Skólavörðunni: ”Hugsað um barn” og ”Hvernig gekk að hugsa um barn?”

Afrit:
Skólanefnd Kópavogs


Í fundargerð bæjarráðs frá fundi 2. nóvember 2006 er meðal annars bókað:

Frá SAMKÓP, dags. 27/10, óskað eftir stuðningi við verkefnið „Hugsað um barn”, til að auðvelda grunnskólum bæjarins að taka það upp sem tilraunaverkefni til næstu 3ja ára.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar og félagsmálaráðs til umsagnar.

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 11-Feb-2007 @ 09:09 GMT.