OgVodafone

Toyota

 

Eftirfarandi grein Helgu Margrétar Guðmundsdóttur birtist í bæjarblöðum Kópavogs á næstu dögum.
Helga Margrét er vel þekkt í foreldrasamfélagi Kópavogsbæjar - þar sem hún hefur reynst sterk stoð í uppbyggingu og viðhaldi góðs foreldrasamstarfs innan bæjarins.


Skólarnir að byrja

Nú er sólríku og góðu sumri senn lokið en mörgum finnst að þegar kennsla hefst í grunnskólunum sé komið haust. Haustið er tími breytinga í lífi okkar og því fylgir oft ákveðin endurskipulagning á heimilislífinu. Þessu geta fylgt aukin fjárútlát og gott að hafa útsjónarsemi hvað allt umstangið varðar. Eftir verslunarmannahelgina fara foreldrar gjarnan að huga að undirbúningi fyrir skólann. Skólatöskur eru teknar fram og hugað að innkaupalistum. Gott er að athuga hvort hægt sé að nota skóladótið frá því í fyrra því með smá upplyftingu má oft nýta það sem til er og óþarfi að kaupa allt nýtt. Í júlí byrja auglýsendur að minna okkur á hvað til stendur með auglýsingaherferðum um skólafatnað og ýmsar nauðsynlegar skólavörur. En það er að mörgu að hyggja og börnin þurfa svo sannarlega á foreldrum sínum að halda þegar skólinn byrjar. Nú eru þau árinu eldri og ný verkefni blasa við, kannski nýr skóli, nýr kennari eða nýr bekkur.

Skólar hefjast yfirleitt eftir miðjan ágúst og standa fram í júní en flestir skólar á höfuðborgarsvæðinu verða settir 22. ágúst. Mörgum foreldrum finnst gott að hafa lokið innkaupum og undirbúningi fyrir skólagönguna í tíma en yfirleitt eru birtar upplýsingar um það hvenær nemendur eigi að mæta á heimasíðum skólanna. Þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um skráningu í mataráskrift og viðveru eftir skóla, innkaupalista, stundaskrár og skóladagatal. Í einstaka skóla hefst kennsla sama dag og skólasetningin.

Handleiðsla foreldra er mjög mikilvæg alla skólagönguna og verður seint ofmetin en sérstaklega þarf að huga að 6 ára börnum í skólabyrjun. Sum þessara barna eiga nú erfiðara með að sofna á kvöldin og foreldrar finna að börnin hafa væntingar, eru jafnvel spennt en sum geta líka verið áhugalítil. Mikilvægt er að foreldrar undirbúi börn sín vel og fylgist með líðan barna sinna í aðdraganda skólans. Margir foreldrar finna líka sjálfir fyrir kvíða sem tengist skólagöngu barnsins. Hvernig verður stundaskráin? Verður boðið upp á mat í skólanum eða þarf barnið að koma með nesti? Verður bekknum kannski skipt upp? Hvernig verður með heimanámið, samskipti við bekkjarfélaga og kennara? Mun barnið fá kennslu við hæfi, verður boðið upp á stoðþjónustu? Hvenær er vetrarfríið?

Einnig er gott að skoða hvaða upplýsingar liggja nú fyrir um barnið í skólann og mikilvægt að foreldrar tilkynni skólanum ef um er að ræða breytta hagi hjá barninu eða foreldrum þess. Gott er að fara yfir hvaða aðstandendur eru skráðir hjá barninu og hvort ný eða breytt símanúmer eru hjá þeim. Sé barnið í stjúpfjölskyldu er rétt að taka það fram. Nauðsynlegt er að foreldrar leiti upplýsinga og fái svör við þeim spurningum sem vakna. Á heimasíðum skóla eða hjá skólariturum er hægt að fá allar upplýsingar um Mentor, viðtalstíma kennara og einnig er þar hægt að leita upplýsinga um foreldraráð, foreldrafélög og hvaðeina er tengist skólagöngu barnsins.

Í flestum skólum er boðið upp á skólafærninámskeið fyrir foreldra 6 ára barna og í sumum skólum fyrir foreldra nemenda í öðrum bekkjardeildum líka. Foreldrar eru hvattir til að sækja þessi fróðlegu námskeið. Þar fá þeir kynningu á skólastarfinu, fræðast m.a. um þroska barna á hinum ýmsu aldursskeiðum, kynnast kennurum barnsins og foreldrum bekkjarfélaganna. Sumir skólar hafa foreldraviðtöl í tengslum við skólasetningu þar sem foreldrar geta hitt kennara barnsins strax fyrsta daginn í persónulegu viðtali. Láta foreldrar mjög vel að því að fá aðgang að kennaranum í skólabyrjun þar sem hægt er að miðla nauðsynlegum upplýsingum. Viðhorf foreldra endurspeglast oft í viðhorfi barnanna til skólans því er mikilvægt að foreldrar séu jákvæðir og ræði ekki neikvæðar hliðar skólastarfsins í návist barnanna. Nemendur þurfa að koma að hreinu borði í orðsins fyllstu merkingu og ekki gott að draga fram gamla drauga eða atburði síðasta skólaárs. Foreldrar þurfa að huga vel að líðan barna sinna og leggja sig fram um að skapa börnunum jákvætt og uppbyggilegt námsumhverfi til að þau verði móttækileg fyrir því sem skólinn hefur fram að færa. Foreldrar verum til staðar fyrir börnin okkar, nú sem endranær.

Helga Margrét Guðmundsdóttir
verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra


ER BARNIÐ ÞITT AÐ BYRJA Í GRUNNSKÓLA?

Atriði sem gott er að hafa í huga:

  • Upphaf skólagöngu eru mikil tímamót fyrir þig og barnið
  • Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga
  • Gættu þess að hafa nægan tíma fyrir barnið á degi hverjum meðan það er að aðlagast skólanum
  • Mundu rétt þinn til 13 vikna launalauss foreldraorlofs frá vinnu – e.t.v. er þetta rétti tíminn til að nýta sér það?
  • Veldu skólatösku við hæfi sem fer vel með bæði barnið og töskurnar. Hafðu barnið með, það þarf að máta skólatöskur eins og föt
  • Aðgættu að barnið sé ekki að bera of þunga tösku og að þyngstu bækurnar séu næst bakinu
  • Röltu með barninu um skólalóðina og helst um skólann, utan annatíma
  • Sendu barnið alltaf með nægt og hollt nesti í skólann
  • Merktu allar eigur barnsins, skóladót og allan fatnað þ.m.t. íþróttafatnað
  • Vertu búin að kaupa inn nauðsynlegt skóladót og merkja áður en að skólinn hefst. Flestir skólar birta innkaupalista á heimasíðum sínum

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 12-Aug-2007 @ 03:39 GMT.