OgVodafone

Toyota

 

Lokað fyrir einelti (frétt á vefnum www.pressan.is, 11. júní 2009)

Vodafone hefur lokað fyrir aðgang að vefsíðunni ringulreid.org en þar mun hafa farið fram gróft, rafrænt einelti og ærumeiðandi ummæli. Ábyrgðarmenn síðunnar hafa ekki fundist.

Í tilkynningu frá Vodafone segir að þetta sé í fyrsta sinn sem gripið sé til slíkra aðgerða.

„Á vefsíðunni fer fram gróft rafrænt einelti og margar kærur hafa borist til lögreglu vegna myndbirtinga og ærumeiðandi ummæla á síðunni. Lögreglu hefur þó ekki tekist að hafa upp á ábyrgðarmönnum síðunnar, sem vistuð er erlendis þótt efni hennar sé íslenskt.“

Ákvörðun Vodafone var tekin eftir að Ríkislögreglustjóri, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Barnaverndarstofa, samtökin Barnaheill, Heimili og skóli, SAFT, Lýðheilsustöð, umboðsmaður barna og Stígamót skoruðu á öll netþjónustufyrirtæki að loka fyrir aðgang að síðunni.

„Vodafone hefur látið kanna lögmæti þess að loka fyrir aðganginn og niðurstaðan er sú, að fyrirtækinu sé heimilt að grípa til lokunar. Rétt er að taka fram, að hér er um einstakt og afmarkað dæmi að ræða, og ákvörðunin um lokun er á ábyrgð Vodafone en ekki ofangreindra aðila. Vodafone hvetur til þess að netnotendur, jafnt börn, unglingar og fullorðnir, umgangist netið af ábyrgð og með virðingu gagnvart öðrum að leiðarljósi.“

Þá eru foreldrar hvattir til að fylgjast með netnotkun barna sinna og kenna þeim Netorðin fimm:

1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu


Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 11-Jun-2009 @ 08:26 GMT.