|
|
Kjaramál kennaraSíðdegis fimmtudaginn 8. mars 2007 féllust fulltrúar KÍ (FG/SÍ) annars vegar og fulltrúar Launanefndar sveitarfélaga hins vegar á tillögu ríkissáttasemjara. Í tillögu ríkissáttasemjara felst eftirfarandi: Í frétt á heimasíðu KÍ kemur fram að: "Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segist bæði sáttur og ósáttur við tillögu ríkissáttasemjara sem samþykkt var í gær af fulltrúum Kennarasambands Íslands annars vegar og fulltrúa Launanefndar sveitarfélaga hins vegar. Hann sé ósáttur við að ekki sé mætt nema að litlu leyti þeirri efnahags- og kjaraþróun sem orðið hafi á samningstímabilinu." Í frétt á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram: "Jafnframt þessu er hluti samkomulagsins tímasett aðgerðaráætlun. Á grundvelli hennar mun skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga nú þegar hefja vinnu við mótun framtíðarsýnar í samvinnu við fulltrúa KÍ og fleiri aðila með það að markmiði að finna leiðir til jákvæðrar skólaþróunar. Kjarasvið sambandsins í samstarfi við fulltrúa KÍ mun einnig hefja mikla greiningar- og samanburðarvinnu á kjörum grunnskólakennara og skólastjórnenda til að undirbúa næstu kjarasamningsgerð. Í upphafi ársins 2008 munu síðan kjaraviðræður aðila hefjast vegna nýs kjarasamnings sem stefnt er að því að undirrita í maí 2008. Í markmiðslýsingu samkomulagsins kemur fram að samningsaðilar eru sammála um að setja sér það markmið og leiðarljós að þegar eiginlegar kjaraviðræður hefjist í janúar 2008 liggi fyrir sem bestar upplýsingar um skólastarfið, framtíðarsýn sveitarstjórnarmanna, skólastjórnenda, kennara og foreldra á því hvernig skólastarfinu verði best hagað. Einnig skal liggja fyrir sameiginlegt mat á áhrifum núverandi kjarasamnings á skólastarfið, nákvæmar upplýsingar um kjör kennara og samanburður á kjörum þeirra við sambærilegar starfsstéttir og launaþróun undanfarin ár. Jafnframt þessu verður sameiginlega unnið að því að skilgreina nánar þarfir og tilgang upplýsingaöflunar um einstaka þætti og kappkostað að ná hverju sinni samstöðu um að upplýsingarnar endurspegli þær staðreyndir sem leitað er eftir. Náist þetta markmið má vænta nýrra og betri vinnubragða af beggja hálfu við gerð næsta kjarasamnings en áður hefur verið reyndin." Það er ljós að foreldrar vænta mikils af þessari vinnu sem vonandi kemur til með að tryggja nemendum stöðugleika, öryggi og góðan vinnufrið í skólastarfinu - með nýjum kjarasamningi kennara sem tekur gildi 1. júní 2008. Aftur til baka í fréttir |