|
|
SAMSTARF HEIMILA OG SKÓLA hefur áhrif á líðan barna.Í sumum bekkjardeildum eru foreldrar virkir og hafa gott samstarf, en í öðrum bekkjum er lítið um foreldrastarf. Hlutverk bekkjartengla er mjög mikilvægt í þessu sambandi. Mikilvægt er að þeir miðli sín á milli góðum ráðum og velti fyrir sér spurningunni um það, hvernig hægt væri að virkja foreldra enn frekar í skólastarfinu. Gera þarf foreldrum grein fyrir mikilvægi samstarfs og að ef foreldrar eru virkir geti það haft úrslitaáhrif á líðan barnanna og námsárangur. Á hinum Norðurlöndunum virðist hafa komist á sú hefð að það sé nánast skylda að foreldrar mæti á foreldrafundi og taki þátt í starfi foreldra í bekk barna sinna. Þeir foreldrar sem búið hafa erlendis hafa margsinnis bent á þennan þátt og vilja leggja sig fram um að skapa sama anda hér í foreldrastarfinu því ávinningurinn sé mikill. Á undanförnum árum hafa foreldrafélög í framhaldsskólum verið að líta dagsins ljós og 18 ára ábyrgð foreldra á börnum sínum verið áréttuð. Samkvæmt rannsóknum kemur ávinningur af foreldrasamvinnu aðallega fram í betri líðan unglinga, bættum námsárangri og ekki hvað síst í minna brottfalli úr námi. Þrír hópar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla, þ.e. nemendur, starfsfólk skólans og foreldrar og er mikilvægt að þessir hópar vinni vel saman að mótun þess samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Til þess að það gangi þarf að ræða reglulega um áherslur og komast að samkomulagi um meginviðmið. Í hraða nútímans og síbreytilegu umhverfi sem við öll þurfum að takast á við í okkar daglega lífi bæði á vinnustöðum hinna fullorðnu og í nemendasamfélaginu reynir á hæfni okkar til samvinnu. Þá er mikilvægt að hlutverk hvers og eins sé vel skilgreint og kynnt. Nemendur þurfa t.d að vita hvert hlutverk kennarans er gagnvart þeim og foreldrum þeirra og umsjónarkennarar og starfsfólk skóla þarf að vita hvert hlutverk foreldra er í skólastarfinu. Öllum þarf að vera ljóst hvernig ferlið er varðandi ábendingar um það sem betur má fara í skólastarfinu. Starfsemi foreldrafélaga í grunnskólum er í stöðugri þróun og við flutning grunnskólans til sveitarfélaga færðist ákvarðanataka í skólamálum nær foreldrum sem undirstrikar þörf fyrir formlegan samstarfsvettvang þeirra. Lögbundin foreldraráð við grunnskóla er nýr þáttur í starfinu og með tilkomu þeirra hafa mörg foreldrafélög endurskoðað starfsemi sína til að styrkja undirstöðuna eða samstarf foreldra enn frekar. Foreldraráð eru kosin á vettvangi foreldrasamstarfsins yfirleitt á aðalfundum foreldrafélaganna. Á nokkrum stöðum á landinu hafa verið stofnuð svæðasamtök foreldra t.d. FÁS á Suðurlandi og FFGÍR í Reykjanesbæ eins og SAMFOK í Reykjavík og SAMKÓP í Kópavogi. Þar skapast vettvangur fyrir formenn foreldrafélga og foreldraráða að skapa samstöðu og koma málum sínum á framfæri með formlegum hætti við fræðsluráð á hverjum stað. Hlutverk umsjónarkennara gagnvart nemendum og foreldrum þarf að skilgreina HVERNIG STARFA FORELDRAR SAMAN Í SKÓLUM? Í þessu sambandi hugsar foreldrið út frá sínu barni og um líðan þess í bekknum en kennarinn lítur gjarnan á bekkinn sem eina heild. Þess vegna er mikilvægt að þessir aðilar eigi góð samskipti og séu vel upplýstir um sjónarmið og hlutverk hvors annars þar sem leitast er við að sjá hlutina í víðara samhengi. Einnig er mikilvægt að bæði skólinn og foreldrar temji sér jákvæð viðhorf gagnvart hver öðrum. Í almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla segir að það séu ein af grundvallar réttindum nemenda að þeir hafi vinnufrið í skólanum þannig að þeir geti náð sem bestum tökum á náminu og að kennslan nýtist þeim sem best. Því þurfi að leggja mikla áherslu á að skapa góðan vinnuanda í einstökum bekkjardeildum og vinna þurfi að því að nemendum líði sem best í skólanum og að skólabragur sé jákvæður. Í foreldrasamfélaginu gegna bekkjarfulltrúar lykilhlutverki í samskiptum foreldra og skólans. Í samstarfi við umsjónarkennar koma foreldrar að félagslífi nemenda og geta bekkjarfulltrúar auðveldað umsjónarkennara samstarf við foreldra. Þeir hjálpa oft við að byggja upp góðan bekkjaranda og geta komið að málum eins og einelti og félagslegri einangrun. Bekkjarfulltrúar eða bekkjartenglar eru á vegum foreldrafélagsins og flest foreldrafélög halda reglulega fundi með bekkjarfulltrúum þar sem rædd eru stefnumið og hugmyndir foreldrafélagsins og foreldraráðs um skólaandann og ýmsar áætlanir skólans í þá átt t.d. hafa margir skólar birt á heimasíðum sínum leiðarljós eða markmið sem unnið er að. Til að samskiptin gangi vel þarf að kynna vel hlutverk bekkjarfulltrúa gagnvart umsjónarkennara. Við heyrum stundum talað um bekkjarfulltrúaþögn þegar kemur að því að velja fulltrúa foreldra í bekknum á foreldrafundum. Margir foreldrar hafa lýst því að þeir hafi misskilið þetta hlutverk og talið að bekkjartenglar ættu að vera eins konar skemmtanastjórar fyrir bekkinn og sjá um bingó og ferðalög og ýmsa viðburði fyrir börnin en þegar þeir hafi starfað náið með stjórn foreldrafélagsins þá hafi þeir gert sér grein fyrir mikilvægi starfsins hvað varðar bekkjarbraginn og almenna velferð barnanna og líðan foreldra. Einstaklingsmiðað nám hefur mikið verið í deiglunni undanfarið. Til þess að vel takist til við það þarf verulega að auka samskipti kennara og foreldra svo betur sé hægt að koma til móts við þarfir hvers og eins. Með gagnkvæmri aðlögun og upplýsingamiðlun væri hægt að auðvelda það ferli til muna. Upplýsingamiðlun og samstarf eru þar lykilatriði. Sú þróun hefur ennfemur orðið að foreldrum gefst nú í auknum mæli tækifæri til að velja skóla fyrir börn sín og hafa Garðabær og Reykjanesbær haft forgöngu um slíkt fyrirkomulag. Gera má ráð fyrir að þar sem slíkt er í boði þurfi skólarnir að skerpa verulega á sérstöðu sinni og skilgreina vel einstaka þætti í skólastarfinu þ.á.m. samstarf við heimilin. Foreldrara bera ábyrgð á uppeldi og námi barna sinna og m.a. í gegnum foreldrasamvinnu eflast foreldrar í þessu veigamikla hlutverki. Þar læra foreldrar á siðmenninguna í foreldrasamvinnunni og á námskynningum á haustin eru þeir kynntir fyrir því sem framundan er í skólastarfinu m.a. hvað varðar samskipti heimila og skóla. Frumkvæði að samstarfi heimilis og skóla þarf að koma frá skólanum og hvatning skólastjórnenda um að foreldrar hafi samstarf er mikilvæg. Foreldrar geta nýtt sér vikulega viðtalstíma kennara eða haft samband í gegnum tölvupóst. Mikilvægt er að allir foreldrar nýti sér þessa möguleika til samstarfs og temji sér jákvæð viðhorf til skólans og nálgist hann af virðingu. Heimsíður skólanna bjóða yfirleitt upp á hagnýtar upplýsingar um skólastarfið og er góð leið fyrir foreldra að nálgast skólann. Í hvetjandi skólaumhverfi er samstarf heimila og skóla virkt í gegnum fyrrgreindar leiðir. Ýmsar frekari upplýsingar er hægt að fá á heimsíðu landssamtaka foreldra á heimiliogskoli.is. Hvernig er foreldrasamstarfi háttað í þinni heimabyggð? Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri sjá Heimili og skóla – Afhent á fundi hjá SAMKOP 29. maí 2006. Aftur til baka í fréttir |