|
|
UmferðarvefurinnUmferðarvefurinn er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskólum, kennara og foreldra. Gert er ráð fyrir að vefurinn verði í sífelldri þróun og að nýtt efni bætist markvisst við. Leitast er við að hafa eins fjölbreytt efni og kostur er á vefnum, en honum er skipt í þrjá hluta, einn fyrir nemendur í 1. til 5. bekk, einn fyrir 6. til 10 bekk og sá þriðji fyrir kennara og foreldra. Allt frá þriggja ára aldri hafa nemendur fengið formlega fræðslu um umferðarmál í umferðarskólanum Ungir vegfarendur. Þeirri fræðslu lýkur þegar nemendur hafa náð 7 ára aldri og er hin formlega fræðsla þá alfarið á ábyrgð grunnskólans. En sú fræðsla sem opinberar stofnanir inna af hendi verður aldrei nema hluti af því umferðaruppeldi sem þarf að fara fram til að nemendur læri að verða ábyrgir vegfarendur. Þar er hlutverk heimilanna í fyrirrúmi því þar er mótunin sterkust. Það skiptir hins vegar miklu máli að heimili og skóli nái öflugu samstarfi á þessu sviði. Til að umferðarfræðsla beri árangur verður að byggja á virkni nemenda og taka mið af þekkingu þeirra og reynslu en þeir hafa jafnan frá mörgu að segja í þessum efnum. Umferðin er hluti af daglegu lífi nemenda og oft skapast því tækifæri til að fjalla um umferðarmál. Þá er mikilvægt að benda á ábyrga hegðun nemenda þegar hún sýnir sig og ræða hana til að styrkja slíka hegðun og útskýra um leið hvers vegna hún er rétt. Verkefnin verða að taka mið af þeim raunveruleika sem nemendur búa við. Umferðin er daglegt verkefni fólks á öllum aldri. Skynjun okkar á þessum raunveruleika er hins vegar mismunandi og það er þekkt að börn skynja aðstæður á annan hátt en hinir fullorðnu. Þá eru samskipti vegfarenda einnig lærð hegðun sem byggir á ákveðnum sáttmála sem er greiptur niður í lög og reglur. Virðing fyrir þessum sáttmála er ómetanleg því án þess getum við aldrei þroskað rétta umferðarhegðun. Höfum það hugfast að viðhorf þeirra sem eldri eru móta þá yngri sem á eftir koma. Umferðarvefnum er ætlað að safna saman tiltækum kennslugögnum og gefa þeim sem áhuga hafa hugmyndir um hvernig hægt sé að vinna með umferðina. Umferðarfræðsla á erindi til allra. Verkefnið er ógnarstórt en spennandi viðfangsefni. Allir foreldrar vilja börnum sínum það besta. Við vitum að í umhverfinu leynast margar hættur. Hættur sem við viljum að börnin forðist. En hvernig getum við náð til barnanna þannig að þau breyti rétt og taki rökrétta afstöðu þegar á reynir? Með frumkvæði, áræðni og samvinnu næst árangur. Við skulum leggjast á eitt og taka umferðarslysin úr umferð. Aftur til baka í fréttir |