Þú ert það sem þú gerir á netinu
Undir yfirskriftinni Þú ert það sem þú gerir á Netinu verður alþjóðlegi netöryggisdagurinn haldinn 12. febrúar næstkomandi. Í tilefni dagsins hefur SAFT, í samstarfi við aðrar þátttökuþjóðir, staðið fyrir nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis. Alls hafa 655 hugmyndir verið sendar inn, þar af 33 frá Íslandi.
Verkefnin eru mjög mismunandi að gerð, allt frá plakötum yfir í myndbönd. Öll eiga þau þó sameiginlegt að innihalda gnægð af upplýsingum sem geta nýst jafn til jafningjafræðslu, og foreldrum og kennurum sem vilja leiða börn og unglinga örugglega í gegnum þann flókna heim sem Netið er.
Nú er komið að almenningi að kjósa á Netinu um það verkefni sem þeim finnst skara fram úr í hverjum flokki. Flokkarnir eru: 5-10 ára, 11-14 ára og 15-19 ára. Atkvæðagreiðslan á Netinu hefst í dag, 1. febrúar, og lýkur 7. febrúar. Til að kjósa þarf að fara inn á slóðina www.saferinternet.org þar sem hægt er að kjósa í öllum þremur flokkunum.
Ráðherra upplýsingamála og fjölmiðla Evrópusambandsins, Vivian Reding, mun tilkynna sigurvegara hvers flokks í bloggfærslu sinni um leið og hún opnar hið árlega blogmaraþon 12. febrúar.
Þeir sem lenda í fyrsta og öðru sæti í þessari alþjóðlegu samkeppni fá peningaverðlaun, sem þeir geta nýtt til þess að kaupa tölvubúnað og/eða námskeið á Netinu varðandi einhver málefni tengd tölvu/tölvubúnaði, þökk sé styrktaraðila keppninnar, UPC/Liberty Global. Auk þess munu þeim hópum sem lentu í fyrsta og öðru sæti í flokknum 15-19 ára verða boðið í 2 daga ferð til Slóveníu í maí þar sem þeim verður boðið að taka þátt í ráðstefnu sem nefnist Youth Protection Roundtable (www.yprt.eu) þar sem þau munu kynna verkefnið sitt. Youth Protection Roundtable, líkt og Insafe, er verkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu sem hluti af verkefninu „Öruggri Internetnotkun“. Atkvæðagreiðslan á Netinu er unnin í samstarfi við Telefonica O2
Til að nálgast nánari upplýsingar um Alþjóðlega Netöryggisdaginn þá bendum við á slóðirnar
www.saft.is
www.saferinternet.org
Upplýsingar varðandi Insafe:
Samstarfsnet þjóðanna sem þátt taka í aðgerðaráætlun Evrópusambandsins ber heitið Insafe. Insafe samanstendur af samskiptastöðvum í aðildarríkjum Evrópusambandsins, ásamt Íslandi og Noregi, með þátttöku samtaka í Argentínu, Ástralíu og Bandaríkjunum. Insafe stefnir að því að gera notendum kleift að nýta sér jákvæðar hliðar Netsins en forðast þær neikvæðari. Frekari upplýsingar má finna á netsíðunni www.saferinternet.org eða með því að hafa samband á info@insafe.eun.org
Aftur til baka í fréttir