Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla
Foreldrasamningurinn hefur veriđ endurútgefinn og heitir nú foreldrasáttmálinn. Foreldrasáttmálinn hefur veriđ lagđur fyrir í fjölmörgum skólum um allt land og í ţeim samfélögum ţar sem góđ samstađa hefur náđst um samninginn er fólk sammála um jákvćđ áhrif hans á unglingamenninguna sem og samstöđu foreldra um ađ virđa útivistarreglurnar svo fátt eitt sé nefnt. Samningurinn er annars vegar fyrir 1.-6. bekk og hins vegar fyrir 7.-10. bekk.
Í ţessu forvarnarverkefni er m.a. bent á ađ foreldrar sem senda barn útsofiđ í skólann eru ađ leggja sitt af mörkum til ađ barniđ nái ćskilegum námsárangri. Einnig tekur samningurinn til eineltis, samábyrgđar og reglna um notkun á tćkni eins og tölvuleikjum og ađgengi ađ Netinu og farsímum en í ţeim málum hafa foreldrar ekki fyrirmynd og ţví mikilvćgt ađ geta haft samráđ um slíkt. Sáttmálinn er fáanlegur á skrifstofu Heimilis og skóla.
Hćgt er ađ nálgast sáttmálann á rafrćnan hátt á heimasíđu Heimilis og skóla.
Aftur til baka í Bekkjarmappa